Burnley búið að ganga frá tveimur kaupum (Staðfest)
Burnley hefur tekist að klifra aftur upp í ensku úrvalsdeildina og er félagið búið að ljúka við sín fyrstu kaup fyrir næsta úrvalsdeildartímabil.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24396 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Burnley hefur tekist að klifra aftur upp í ensku úrvalsdeildina og er félagið búið að ljúka við sín fyrstu kaup fyrir næsta úrvalsdeildartímabil.
Argentínska stórstjarnan Ángel Di María er búin að skrifa undir samning við uppeldisfélagið sitt Rosario Central.
Þýska félagið Werder Bremen staðfesti ráðningu á nýjum þjálfara í dag en Horst Steffen tekur við af Ola Werner.
Úkraínski miðjumaðurinn Yehor Yarmoliuk framlengdi í dag samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brentford til ársins 2031.
Miðvörðurinn eftirsótti Jonathan Tah er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Þýskalandsmeistara FC Bayern.
KR hefur keypt hinn nítján ára gamla Amin Cosic frá Lengjudeildarliði Njarðvíkur. Amin er kantmaður sem hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í uphafi tímabilsins en hann er með þrjú mörk í fyrstu fjórum umferðunum. Amin, sem er uppalinn hjá HK, mun halda áfram að spila fyrir Njarðvík þar til félagaskiptaglugginn opnar í júlí. <i>„Knattspyrnudeild Njarðvíkur vill þakka KR fyrir góð og fagleg samskipti kringum félagsskiptin. Njarðvík óskar einnig Amin og hans fjölskyldu alls hins besta hjá nýju félagi,"</I> segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Ólöf Sara Sigurðardóttir er gengin til liðs við ÍR frá Álftanesi. Ólöf er fædd árið 2004 og er uppalin í Stjörnunni. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Álftanesi árið 2021.
Varnarmaðurinn Michael Kayode hefur skrifað undir fimm ára samning við Brentford. Félagið ákvað að nýta sér ákvæði um að kaupa þennan tvítuga leikmann frá Fiorentina. Hann kom upphaflega til Brentford á lánssamningi í janúar.
Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson er farinn frá þýska B-deildarfélaginu Preussen Münster en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Úkraínska félagið Shakhtar Donetsk tilkynnti komu tyrkneska þjálfarans Arda Turan í dag en hann gerir samning til næstu tveggja ára.
Spænski vængmaðurinn Lamine Yamal staðfesti tryggð sína við Barcelona í dag með því að framlengja samning sinn við félagið til 2031. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Börsungum.
Sævar Atli Magnússon er genginn í raðir Brann og hefur skrifað undir samning sem gildir frá 1. júlí og út tímabilið 2029. Fótbolti.net sagði frá því fyrir tveimur vikum að Sævar væri nálægt samkomulagi við Brann og nú hefur það raungerst. Sævar Atli er 24 ára sóknarmaður sem getur einnig spilað á miðjunni. Hann kemur á frjálsri sölu frá Lyngby hvar hann hefur spilað síðan haustið 2021.
Færeyski kantmaðurinn Kaj Leo Í Bartalsstovu hefur fengið félagaskipti í KFK sem spilar í 3. deildinni. Kaj Leo lék með Njarðvík á síðasta tímabili og skoraði fimm mörk í átján leikjum. Hann kom til Njarðvíkur í glugganum 2023 eftir að hafa verið hjá Leikni fyrri hluta tímabilsins.
Hollendingurinn Erik ten Hag hefur verið ráðinn stjóri Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Félagið staðfesti þetta núna í morgunsárið en Ten Hag skrifar undir samning til sumarsins 2027.
Spænska félagið Real Madrid hefur staðfest komu Xabi Alonso frá Bayer Leverkusen en hann tekur við af Carlo Ancelotti sem var kvaddur í gær.
<b>Sheffield Utd 1 - 2 Sunderland</b> 1-0 Tyrese Campbell ('25 ) 1-1 Eliezer Mayenda ('76 ) 1-2 Tom Watson ('90 ) Sunderland er komið aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir átta ára fjarveru en þetta varð ljóst eftir dramatískan 2-1 sigur liðsins á Sheffield United á Wembley í dag.
KA hefur tilkynnt nýjan leikmann en Þórhallur Ási Aðalsteinsson er genginn í raðir félagsins frá Hetti/Hugin.
Fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir hefur fengið neyðarskipti yfir í FH. Félagaskiptaglugginn er lokaður en FH getur fengið Söndru yfir þar sem liðið er ekki með neinn leikfæran markvörð. Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður liðsins, er með slitið krossband og spilar ekki meira með í sumar.
Luís Campos er búinn að skrifa undir nýjan samning við franska stórveldið Paris Saint-Germain. Hann verður áfram í starfi sem sérstakur ráðgjafi um fótboltamál hjá PSG, starf sem samsvarar starfi yfirmanns fótboltamála að flestu leyti.
Brasilíski kantmaðurinn Raphinha hefur átt framúrskarandi tímabil með Barcelona þar sem hann er orðinn ómissandi lykilleikmaður undir stjórn Hansi Flick.