Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 15:15
Brynjar Ingi Erluson
Yarmoliuk gerir sex ára samning við Brentford (Staðfest)
Mynd: EPA
Úkraínski miðjumaðurinn Yehor Yarmoliuk framlengdi í dag samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brentford til ársins 2031.

Yarmoliuk er 21 árs gamall og spilað með Brentford síðustu þrjú ár.

Hann kom til félagsins frá Dnipro í heimalandinu og reynst Brentford gríðarlega mikilvægur.

Miðjumaðurinn byrjaði níu af síðustu tíu deildarleikjum liðsins í deildinni á þessu tímabili og hefur nú verið verðlaunaður fyrir frammistöðu sína með nýjum sex ára samningi.

Samningurinn gildir til 2031 með möguleika á að framlengja hann um eitt ár til viðbótar.

„Ég er í skýjunum með að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. Þetta gefur mér meiri orku til að leggja enn meiri vinnu á mig,“ sagði Yarmoliuk.

Besta ár Yarmoliuk til þessa sem spilaði einnig sína fyrstu A-landsleiki með Úkraínu í umspili Þjóðadeildarinnar í mars.
Athugasemdir
banner