Fotbolti.net
29.05.25 - 10:21
Elvar Geir Magnússon

Amin Cosic fer til KR (Staðfest)

KR hefur fengið ungan leikmann Njarðvíkur.

KR hefur fengið ungan leikmann Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur keypt hinn nítján ára gamla Amin Cosic frá Lengjudeildarliði Njarðvíkur. Amin er kantmaður sem hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í uphafi tímabilsins en hann er með þrjú mörk í fyrstu fjórum umferðunum.

Amin, sem er uppalinn hjá HK, mun halda áfram að spila fyrir Njarðvík þar til félagaskiptaglugginn opnar í júlí.

„Knattspyrnudeild Njarðvíkur vill þakka KR fyrir góð og fagleg samskipti kringum félagsskiptin. Njarðvík óskar einnig Amin og hans fjölskyldu alls hins besta hjá nýju félagi," segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Skoraði gegn uppeldisfélaginu - „Frekar valið þetta mark heldur en þrjú önnur"
TENGT EFNI

Skoraði gegn uppeldisfélaginu - „Frekar valið þetta mark heldur en þrjú önnur"



Fréttatilkynning Njarðvíkur:
Knattspyrnudeild Njarðvíkur og knattspyrnudeild KR hafa gert samkomulag um sölu á Amin Cosic frá Njarðvík til KR.

Amin er kantmaður sem er fæddur árið 2005 á að baki 32 leiki fyrir Njarðvík og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hann hefur verið mjög vaxandi í spilamennsku sinni fá því hann gekk til liðs við Njarðvík frá HK í upphafi árs 2024.

Þrátt fyrir að gengið hafi verið frá sölu á Amin
þá verður hann áfram leikmaður Njarðvíkur þangað til félagaskiptaglugginn opnar aftur í júlí. Hans síðasti leikur fyrir Njarðvík, amk í bili verður gegn Fylki 18. júlí.

Knattspyrnudeild Njarðvíkur vill þakka KR fyrir góð og fagleg samskipti kringum félagsskiptin. Njarðvík óskar einnig Amin og hans fjölskyldu alls hins besta hjá nýju félagi. Um leið erum við spenntir að njóta krafta Amins næstu vikurnar.

Mikill uppgangur hefur verið hjá knattspyrnudeild Njarðvíkur síðustu misseri og er það fagnaðarefni að stærstu lið landsins horfi til leikmanna okkar. Við viljum um leið hvetja alla Njarðvíkinga að fjölmenna á leiki okkar í baráttu Lengjudeildarinnar. Næsti leikur er á Selfossi á föstudaginn.

Fyrir fánann og UMFN
Amin Cosic fer til KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.