Fotbolti.net
29.05.25 - 12:27
Ívan Guðjón Baldursson

Jonathan Tah kominn til Bayern (Staðfest)

Jonathan Tah kominn til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Miðvörðurinn eftirsótti Jonathan Tah er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Þýskalandsmeistara FC Bayern.
Tah kemur á frjálsri sölu frá Bayer Leverkusen en stórveldi víða um Evrópu höfðu áhuga á honum í sumar. Manchester United, Real Madrid og Barcelona voru meðal annars nefnd til sögunnar, en Tah valdi Bayern.

Tah er 29 ára gamall og á 35 landsleiki að baki fyrir Þýskaland. Hann er lykilmaður fyrir landsliðið og var lykilmaður í liði Leverkusen undir stjórn Xabi Alonso.

Stjórnendur Bayern sjá Tah fyrir sér sem fullkominn leikmann til að spila í miðri þriggja manna varnarlínu. Tah er talinn ekki hafa viljað skipta til Real Madrid eða Barcelona útaf því að spænsku félögin spila með fjögurra manna varnarlínu.

Tah hefur í fortíðinni átt erfitt uppdráttar í fjögurra manna varnarlínum og virðist virkilega hafa fundið sinn takt í hjarta varnarinnar hjá Xabi Alonso.

Tah var hjá Leverkusen í tíu ár og spilaði 402 leiki fyrir félagið.

Jonathan Tah kominn til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.