Fotbolti.net
29.05.25 - 16:15
Brynjar Ingi Erluson

Tekinn við Bremen nokkrum dögum eftir að hafa tapað umspili (Staðfest)

Horst Steffen

Horst Steffen

Canon

Mynd: Werder Bremen

Þýska félagið Werder Bremen staðfesti ráðningu á nýjum þjálfara í dag en Horst Steffen tekur við af Ola Werner.
Bremen, sem hafnaði í 8. sæti þýsku deildarinnar, og Werner tóku sameiginlega ákvörðun um að hann yrði ekki áfram þjálfari liðsins, en greint var frá þeirri ákvörðun fyrir tveimur dögum.

Félagið var ekki lengi að finna arftaka hans en það hefur keypt Horst Steffen frá B-deildarliði Elversberg.

Horst fór með Elversberg upp um tvær deildir á tveimur árum og var hársbreidd frá því að koma því upp í efstu deild á dögunum.

Elversberg hafnaði í 3. sæti B-deildarinnar og tryggði sér þar með hreint úrslitaeinvígi gegn Heidenheim um sæti í efstu deild, en Heidenheim hafnaði í þriðja neðsta sæti efstu deildar.

Fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Elversberg tapaði seinni leiknum 2-1 eftir dramatísk sigurmark seint í uppbótartíma.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.