Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24408 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.08.2024, 17:30

David Neres mættur til Napoli (Staðfest)

Napoli hefur tilkynnt um kaup á brasilíska vængmanninum David Neres frá Benfica í Portúgal. Eins og venjulega þegar Napoli kaupir leikmann þá var það forseti félagsins Aurelio De Laurentiis sem tilkynnti fyrstur um kaupin. Þessi 27 ára leikmaður kostar í heildina um 28 milljónir evra en hann er fjórði leikmaðurinn sem Napoli kaupir í sumar.

FRÉTTIR21.08.2024, 16:12

Kolbeinn Finnsson til Utrecht (Staðfest)

Íslenski landsliðsmaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður hollenska úrvalsdeildarfélagsins Utrecht. Utrecht kaupir hann af Lyngby og greiðir 500 þúsund evrur fyrir. Hann skrifar undir þriggja ára samning í Hollandi með möguleika á ári til viðbótar. Hann var einnig orðaður við Kortrijk og Holstein Kiel í sumar. Hann er 24 ára og er uppalinn hjá Fylki. Utrecht rifjar upp að Kolbeinn hafi þreytt frumraun sína með meistaraflokki Fylkis þegar hann var 14 ára og varð með því yngsti leikmaður í sögu félagsins. Bent er á þá staðreynd að hann sé sonur fyrrum atvinnu- og landsliðsmannsins Finns Kolbeinssonar og hafi árið 2016 haldið til Groningen þar sem hann var til ársins 2018 en þá samdi hann við Brentford og lék þar með varaliði félagsins.

FRÉTTIR21.08.2024, 15:54

Man Utd selur Pellistri til Panathinaikos (Staðfest) - Verður liðsfélagi Harðar og Sverris

Manchester United hefur staðfest félagaskipti Facundo Pellistri til Panathinaikos í Grikklandi. Pellistri, sem lék sinn síðasta leik fyrir United sem varamaður gegn Manchester City í Samfélagsskildinum, fer á um 5 milljónir punda til Grikklands. United fær þá háa prósentu af næstu sölu Úrúgvæjans og getur keypt hann til baka á næstu þremur árum fyrir ákveðna upphæð.

FRÉTTIR21.08.2024, 11:53

Joao Felix til Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur gengið frá kaupum á Joao Felix frá Atletico Madrid. Kaupverðið er rúmlega 46 milljónir punda. Chelsea greiðir 42 milljónir punda og svo getur verðmiðinn hækkað um 4,3 milljónir punda út frá árangurstengdum gjöldum. Hann skrifar undir sex ára samning með möguleika á eins árs framlengingu. Felix er 24 ára Portúgali sem keyptur var til Atletico frá Benfica árið 2019 fyrir 113 milljónir punda. Það er fjórða hæsta upphæð sem greidd hefur verið leikmann í sögu fótboltans. Felix þekkir til hjá Chelsea því hann var á láni hjá félaginu fyrri hluta ársins 2023 og skoraði þá fjögur deildarmörk í sextán leikjum.

FRÉTTIR21.08.2024, 11:26

Rugani lánaður til Ajax (Staðfest)

Hollenska félagið Ajax hefur fengið Daniele Rugani, varnarmann Juventus, lánaðan út tímabilið. Þessi þrítugi leikmaður hefur allan sinn aðaliðsferil verið hjá Juventus en hann lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í ítölsku A-deildinni 2015.

FRÉTTIR21.08.2024, 10:13

Chelsea lánar Humphreys til Burnley (Staðfest)

Bashir Humphreys miðvörður Chelsea hefur gengið í raðir Burnley í Championship-deildinni á eins árs lánssamningi. Þessi 21 árs leikmaður kom upp úr akademíu Chelsea og hefur leikið tvo aðalliðsleiki fyrir félagið. Hann var stærstan hluta síðasta tímabils á láni til Swansea. Stjóri Burnley er Scott Parker, fyrrum miðjumaður Chelsea.

FRÉTTIR21.08.2024, 09:48

Gallagher til Atletico Madrid (Staðfest)

Spænska félagið Atletico Madrid hefur tilkynnt um kaup á enska miðjumanninum Conor Gallagher frá Chelsea. Kaupverðið er talið í kringum 33 milljónir punda. Þessi 24 ára leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning við spænska félagið. Gallagher kom til Chelsea þegar hann var sex ára gamall, lék 90 leiki fyrir aðalliðið og skoraði 10 mörk. Hann var kominn á lokaár samnings síns á Brúnni og Chelsea vildi ekki eiga á hættu að missa hann á frjálsri sölu næsta sumar. Joao Felix mun að öllum líkindum fara í öfuga átt en Chelsea hefur náð samkomulagi um kaupverðið á portúgalska landsliðsmanninum.

FRÉTTIR20.08.2024, 13:23

Heckingbottom nýr stjóri Stefáns og félaga (Staðfest)

Preston North End hefur ráðið Paul Heckingbottom sem nýjan stjóra félagsins. Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson er meðal leikmanna Preston. Stefán hefur spilað báða fyrstu leiki Preston í Championship-deildinni en báðir hafa tapast.

FRÉTTIR19.08.2024, 15:00

Oliver Skipp í Leicester (Staðfest)

Miðjumaðurinn Oliver Skipp er genginn í raðir Leicester frá Tottenham en félögin staðfestu þetta núna rétt áðan. Kaupverðið er í kringum 25 milljónir punda.

FRÉTTIR19.08.2024, 14:56

Leik KR og Víkings frestað (Staðfest) - Andrými milli Evrópuleikjanna

KSÍ tilkynnti í dag um breytingu á þremur leikjum í Bestu deildinni þar sem Vikingur er á leið í umsplið í Sambansdeildinni. Víkingur á heimaleik gegn Santa Coloma á fimmtudag og spilar svo í Andorra viku síðar. Sigri Víkingur einvígið við Santa Coloma þá fer liðið í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Leikur KR og Víkings hefur verið færður. Hann átti að fara fram eftir viku, þann 26. ágúst, en mjun fara fram föstudaginn 13. september.

FRÉTTIR18.08.2024, 11:40

Theate kominn til Frankfurt (Staðfest)

Belgíski landsliðsmaðurinn Arthur Theate er búinn að skrifa undir samning við þýska félagið Eintracht Frankfurt, sem fær hann á láni úr röðum Rennes með kaupmöguleika sem hljóðar upp á tæplega 20 milljónir evra.

FRÉTTIR17.08.2024, 15:20

Fofana kominn til Milan (Staðfest)

Ítalska stórveldið AC Milan er búið að festa kaup á franska landsliðsmanninum Youssouf Fofana sem kemur úr röðum AS Monaco.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.