Ugochukwu til Southampton á láni frá Chelsea (Staðfest)

Southampton hefur fengið franska miðjumanninn Lesley Ugochukwu á láni frá Chelsea fyrir átökin í úrvalsdeildinni.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24408 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Southampton hefur fengið franska miðjumanninn Lesley Ugochukwu á láni frá Chelsea fyrir átökin í úrvalsdeildinni.

Nottingham Forest hefur nælt í vængmanninn Ramon Sosa en hann er landsliðsmaður Paragvæ.

Hann skrifar undir fimm ára samning.

Igor Bjarni Kostic hefur verið ráðinn þjálfari Gróttu sem leikur í Lengjudeildinni en hann tekur við af Chris Brazell sem var látinn taka pokann sinn á dögunum.

Brasilíski framherjinn Evanilson er genginn til liðs við Bournemouth frá Porto fyrir metfé.

Xherdan Shaqiri er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við FC Basel og er því mættur aftur í félagið þar sem hann hóf feril sinn. Shaqiri er 32 ára, fyrrum svissneskur landsliðsmaður, sem hefur leikið með Chicago Fire síðustu þrjú tímabil. Hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir EM. Hann rifti samningum sínum við Chicago fyrr í þessari viku.
Albert Guðmundsson er formlega orðinn leikmaður Fiorentina. Ítalska félagið kynnir hann sem nýjan leikmann á samfélagsmiðlum sínum. Í tilkynningu Fiorentina segir að hann verði formlega kynntur á fjölmiðlaviðburði í hádeginu á þriðjudag. Albert kemur á láni frá Genoa og er Fiorentina með kaupmöguleika í þeim lánssamningi. Fiorentina greiðir Genoa 8 milljónir evra fyrir að hafa Albert í eitt tímabil og þarf svo að greiða 20 milljónir evra til viðbótar til að fá hann alfarið yfir. Fiorentina á leik gegn Parma á morgun í 1. umferð ítölsku deildarinnar. Svo mætir liðið Puskas Academy í umspili um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn á fimmtudag gæti orðið fyrsti leikur Alberts fyrir Fiorentina.
Vestri hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprett tímablsins því Inaki Rodriguez er orðinn leikmaður félagsins. Hann getur spilað með liðinu gegn KR á morgun því félagaskiptin gengu í gegn í dag og leikheimildin tekur gildi á morgun. Vestramenn voru vongóðir um að hafa náð að skila öllum pappírum rétt frá sér fyrir gluggalok og það hefur tekist. Glugginn lokaði á þriðjudagskvöld. Hann er 24 ára Spánverji sem spilar framarlega á miðjunni. Hann er í raun fjórði leikmaðurinn sem Vestri fékk í glugganum. Vestri fékk tvo markverði og svo danska miðjumanninn Jeppe Pedersen.
Diego Moreira gekk í raðir Chelsea síðasta sumar á frjálsri söu frá Benfica. Vængmaðurinn er tvítugur og skrifaði undir fimm ára samning. Hann lék einn leik með Chelsea, leik í deildabikarnum í lok ágúst. Hann var svo lánaður til Lyon og lék með franska liðinu fyrri hluta tímabilsins. Hann spilaði einungis sjö deildarleiki með Lyon og sneri aftur til Chelsea í janúar.
Southampton hefur krækt í liðsstyrk frá Aston Villa því sóknarmaðurinn Cameron Archer er kominn til félagsins og skrifar undir fjögurra ára samning. Kaupverðið er sagt vera 15 milljónir punda. Archer er 22 ára og er uppalinn hjá Aston Villa. Hann var keyptur til Sheffield United fyrir síðasta tímabil en eftir að Sheffield United féll sneri Archer aftur til Villa.
Enski miðjumaðurinn Kalvin Phillips er mættur til Ipswich og spilar þar í vetur á láni frá Manchester City. Enski landsliðsmaðurinn er sagður hafa orðið spenntur fyrir verkefninu hjá Ipswich eftir samtal við stjórann Kieran McKenna og stjórnarformanninn Mark Ashton.
Ipswich hefur krækt í Sammie Szmodics frá Blackburn. Ipswich er talið greiða á bilinu 9-10 milljónir punda. Szmodics varð markakónugr í næstefstu deild Englands, Championship, á síðasta tímabili. Hann skpraði 27 mörk og hefur þegar skorað þrjú mörk á þessu tímabili í tveimur leikjum.
Willian tilkynnti með færslu á Instagram í dag að hann væri farinn frá Fulham. Samningur hans við félagið rann út í sumar. Fjallað var um það í vor að stjórinn, Marco Silva, ætlaði sér að gera allt sem hann gæti til að halda Willian hjá félaginu en það tókst ekki.
Tottenham hefur keypt kantmanninn Wilson Odobert frá Burnley. Í frönskum fjölmiðlum er talað um að kaupverðið sé í kringum 37 milljónir evra. Þessi 19 ára gamli leikmaður skrifar undir samning sem gildir til ársins 2029.
Þýski miðvörðurinn Armel Bella-Kotchap er kominn til Hoffenheim þrátt fyrir vandamál í læknisskoðun hjá félaginu.
Spænska félagið Villarreal hefur nýtt sér ótrúlega lágt riftunarákvæði í samningi spænska landsliðsmannsins Ayoze Pérez við Real Betis.
Þýski sóknartengiliðurinn Marco Reus er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við Los Angeles Galaxy sem leikur í bandarísku MLS deildinni.
KR tilkynnti rétt i þessu að aðalstjórn félagsins hefði óskað eftir kröftum Pálma Rafns Pálmasonar fyrr en áætlað var. Hann er því nú þegar tekinn við sem framkvæmdastjóri félagsins og hættir sem þjálfari meistaraflokks karla. Óskar Hrafn Þorvaldsson tekur við sem þjálfari eftir að hafa verið í um tvær vikur aðstoðarþjálfari Pálma. Fótbolti.net fjallaði um það í gær að Óskar væri tekinn við þjálfun liðsins. Í tilkynningu KR segir að aðstöðumál KR séu á mjög alvarlegu stigi og því geti félagið ekki verið án framkvæmdastjóra fram yfir lok tímabilsins. Bjarni Guðjónsson hættir í því starfi í lok mánaðar. Þar sem talað er um aðstöðumál þá tilkynnti KR í gær að búið væri að loka æfingavellinum, gervigrasvellinum sem venslaliðið KV spilar venjulega sína leiki á. Sá völlur er ónýtur.
Spænska félagið Girona, sem er í eigu City Football Group sem eiga einnig Manchester CIty á Englandi, hefur fest kaup á norður-makedónska framherjanum Bojan Miovski.
Chante Sandiford fékk félagaskipti yfir í Þrótt áður en félagaskiptaglugginn lokaði á dögunum. Mollee Swift, markvörður Þróttar, hefur verið tæp vegna meiðsla og því sannfærði Þróttur Chante um að fá félagaskipti, til öryggis.
Varnarmaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út næsta tímabil.