Southampton fær 15 milljónir frá Hoffenheim (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýski miðvörðurinn Armel Bella-Kotchap er kominn til Hoffenheim þrátt fyrir vandamál í læknisskoðun hjá félaginu.
Hoffenheim kaupir varnarmanninn fyrir um 15 milljónir evra og kemur hann úr röðum úrvalsdeildarnýliðanna í Southampton.
Bella-Kotchap er 22 ára gamall með tvo landsleiki að baki fyrir A-landslið Þýskalands.
Hann hefur glímt við meiðslavandræði á síðustu árum og átti mislukkaða lánsdvöl hjá PSV Eindhoven í hollenska boltanum á síðustu leiktíð.
Læknateymi Hoffenheim fann vandamál í læknisskoðuninni hjá Bella-Kotchap en þar var einungis vera um að ræða smávægileg meiðsli og því hefur verið gefið grænt ljós á félagaskiptin.
FC Bayern hafði meðal annars áhuga á miðverðinum en var ekki reiðubúið til að taka áhættu í ljósi meiðslasögu hans og lítils spiltíma. Bella-Kotchap hefur ekki spilað byrjunarliðsfótbolta á hæsta stigi í um það bil tvö ár.
--- staðfesting twitter hoffenheim incoming --