Wilson Odobert til Tottenham (Staðfest)

Wilson Odobert.

Mynd: Getty Images

Wilson Odobert.

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt kantmanninn Wilson Odobert frá Burnley. Í frönskum fjölmiðlum er talað um að kaupverðið sé í kringum 37 milljónir evra.
Þessi 19 ára gamli leikmaður skrifar undir samning sem gildir til ársins 2029.

Odobert skoraði í 4-1 sigri Burnley gegn Luton í Championship-deildinni síðasta mánudagskvöld en fer núna til London.
Odobert, sem hefur leikið fyrir yngri landslið Frakklands, hóf feril sinn í akademíu Paris Saint-Germain en árið 2022 gekk hann í raðir Troyes. Hann lék svo með Burnley í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og átti þar fína spretti.
Hjá Burnley lék hann 35 leiki í öllum keppnum og skoraði hann fimm mörk.
Tottenham hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöld gegn Leicester.