Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25145 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR19.04.2024, 18:31

Jason Wilcox ráðinn til Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur staðfest ráðningu á Jason Wilcox sem nýjum tæknistjóra félagsins, þar sem hann mun starfa samhliða nýlega ráðnum framkvæmdastjóra Omar Berrada og væntanlegum yfirmanni fótboltamála Dan Ashworth, sem er samningsbundinn Newcastle United sem stendur.

FRÉTTIR19.04.2024, 12:43

Pétur Theódór heim í Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti rétt í þessu að Pétur Theódór Árnason væri genginn til liðs við félagið frá Breiðabliki. <b>Úr tilkynningu Gróttu:</b> Eins og kunnugt er var Pétur keyptur til Breiðabliks frá Gróttu eftir tímabilið 2021 en varð fyrir því óláni að slíta krossband þá um haustið. Pétur lék því aðeins einn leik þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari árið 2022 og spilaði svo með Gróttu á láni síðasta sumar. Liðþófameiðsli urðu til þess að Pétur spilaði ekkert seinni hluta tímabilsins í fyrra en fyrstu æfingarnar með Gróttu hafa gengið vel og það verður spenanndi að sjá hvort að framherjinn knái nái að láta ljós sitt skína í sumar. Pétur var samningsbundinn Breiðabliki út komandi tímabil en ákvað fyrr í vetur að rifta samningi sínum við félagið.

FRÉTTIR19.04.2024, 12:30

Keflavík fær markaskorara frá Augnabliki (Staðfest)

Augnablik tilkynnti í dag að Rúnar Ingi Eysteinsson væri búinn að kveðja félagið og væri genginn í raðir Keflavíkur. <i>„Það er komið að tímamótum hjá einum okkar helsta markaskorara, Rúnari Inga, en hann hefur skrifað undir samning við Suðurnesjarisann Keflavík,"</I> segir í byrjun tilkynningarinnar sem má lesa í heild sinni hér neðst.

FRÉTTIR19.04.2024, 11:38

Bandarískur bakvörður til Vals (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við bandaríska bakvörðinn Camryn Paige Hartmann um að spila með liðinu tímabilið 2024. Hartmann er 24 ára vinstri bakvörður og kemur hún frá Cleveland. Í tilkynningu Vals segir að hún eigi nokkuð farsælan feril úr háskólaboltanum að baki.

FRÉTTIR19.04.2024, 09:30

Nagelsmann framlengir við Þýskaland út HM (Staðfest)

Julian Nagelsmann hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum sem landsliðsþjálfari Þýskalands. Nagelsmann var sagður efstur á blaði hjá Bayern München sem skiptir um stjóra í sumar og þá hefur hann verið orðaður við ensku úrvalsdeildina, þar á meðal Liverpool. En Nagelsmann, sem er 36 ára og tók við af Hansi Flick í september, er nú búinn að skrifa undir samning sem gildir út HM 2026 en þá fer keppnin fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

FRÉTTIR18.04.2024, 13:20

Kristófer Leví til Grindavíkur (Staðfest)

Grindavík hefur fengið Kristófer Leví Sigtryggsson í sínar raðir frá Gróttu. Hann er kominn með leikheimild og getur því verið í hópnum þegar Grindavík mætir ÍBV í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í næstu viku. Kristófer er fæddur árið 2000 og ekk hann í raðir Gróttu fyrir tímabilið 2022 eftir að hafa verið hjá Fylki. Það tímabilið var hann varamarkvörður Gróttu en í fyrra lék hann seinni hluta tímabilsins á láni hjá KFG.

FRÉTTIR18.04.2024, 10:30

Hætta með endurtekna leiki í FA-bikarnum (Staðfest)

Enska fótboltasambandið og enska úrvalsdeildin hafa náð samkomulagi um breytt fyrirkomulag á elstu og virtustu bikarkeppni heims, FA-bikarnum. Frá og með næsta keppnistímabili verða leikir FA bikarsins ekki endurteknir frá og með fyrstu umferð. Úrvalsdeildarliðin koma inn í þriðju umferð. Reglan hefur verið sú að ef leikur endar með jafntefli þá mætist liðin að nýju á heimavelli útiliðsins. Nú verður hinsvegar leikið til þrautar og liðin mætast ekki að nýju.

FRÉTTIR17.04.2024, 13:00

Eiður Atli í ÍBV (Staðfest)

Eiður Atli Rúnarsson er genginn í raðir ÍBV á láni frá HK. Hann er annar leikmaðurinn sem ÍBV krækir í á þessum miðvikudegi því fyrr í dag kom Bjarki Björn Gunnarsson á láni frá Víkingi.

FRÉTTIR17.04.2024, 10:30

Bjarki Björn aftur til ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur fengið Bjarka Björn Gunnarsson aftur á láni frá Víkingi Reykjavík. Bjarki var hjá ÍBV á síðasta tímabili en náði ekki að spila nema ellefu leiki vegna meiðsla. Bjarki er 23 ára miðjumaður sem lék tvo leiki með Víkingi í Lengjubikarnum í vetur. Hann var svo á bekknum í leiknum gegn Val í Meistarakeppni KSÍ og gegn Stjörnunni í 1. umferð Bestu deildarinnar.

FRÉTTIR17.04.2024, 10:11

Andri Lucas keyptur til Lyngby (Staðfest)

Lyngby tilkynnti rétt í þessu að Andri Lucas Guðjohnsen væri búinn að skrifa undir þriggja ára samning við danska félagið Lyngby. Félagið kaupir hann frá sænska félaginu Norrköping þar sem hann var samningsbundinn en hann hefur verið á láni hjá Lyngby í vetur. Hann er markahæsti leikmaður Lyngby á tímabilinu, hefur skorað 11 mörk í 25 leikjum.

FRÉTTIR16.04.2024, 12:30

Valur lánar þrjár efnilegar (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að það væri búið að lána þrjá efnilega leikmenn úr leikmannahópnum til annarra félaga. Tvær þeirra eru fæddir árið 2006. Það eru þær Kolbrá Una Kristinsdóttir og Glódís María Gunnarsdóttir. Kolbrá Una, sem á að baki 24 leiki fyrir yngri landsliðin, fer á láni til Gróttu í Lengjudeildinni og Glódís María, sem á að baki átta leiki fyrir yngri landsliðin, fer til Hauka í 2. deild. Kolbrá lék sex leiki með Gróttu á síðasta tímabili og Glódís lék með KH.

FRÉTTIR16.04.2024, 08:30

Felipe Anderson til Palmeiras í sumar (Staðfest)

Brasilíski kantmaðurinn Felipe Anderson verður samningslaus eftir tímabilið með Lazio í efstu deild ítalska boltans og ætlar ekki að gera nýjan samning við félagið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.