Fotbolti.net
16.04.24 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Elíza Gígja í Aftureldingu (Staðfest)

Elíza Gígja í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Afturelding

Hertz
Elíza Gígja Ómarsdóttir mun leika með Aftureldingu í sumar á láni frá uppeldisfélagi sínu Víkingi R.
Elíza Gígja er fædd 2003 og á hún 12 keppnisleiki að baki fyrir sterkt lið Víkings, þar af 7 í Lengjudeildinni, en hefur ekki fengið mikinn spiltíma vegna krossbandsslita.

Elíza leikur sem varnarmaður og gæti reynst mikilvægur liðsstyrkur fyrir Aftureldingu í Lengjudeildinni í sumar. Mosfellingar enduðu í fimmta sæti í fyrra, með 29 stig úr 18 umferðum.

„Afturelding býður Elízu hjartanlega velkomna í Mosfellsbæinn og þakkar John Andrews þjálfara Víkinga samstarfið," segir meðal annars í tilkynningu frá Aftureldingu.

Til gamans má geta að Elíza er dugleg að fylgjast með íslenska boltanum og textalýsir reglulega leikjum fyrir Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.