Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.02.2026, 17:00

Sargent til Toronto (Staðfest) - Jafndýr og Son

Norwich City hefur selt sóknarmanninn Josh Sargent til Toronto FC í MLS-deildinni fyrir rúmlega 20 milljónir punda. Þessi 26 ára bandaríski landsliðsmaður krotaði undir fimm ára samning eftir að hafa staðist læknisskoðun. Hann er dýrasti leikmaður sem félag í MLS-deildinni hefur keypt, ásamt Son Heung-min sem fór til Los Angeles FC í ágúst.

FRÉTTIR26.02.2026, 18:16

Andrews stýrir Brentford til 2032 (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford hefur verðlaunað írska stjórann Keith Andrews fyrir góða frammistöðu á þessari leiktíð með því að framlengja samning hans til 2032.

FRÉTTIR26.02.2026, 09:29

Elvar Baldvins aftur í Þór (Staðfest)

Þór tilkynnti í gærkvöldi um endurkomu Elvars Baldvinssonar til félagsins. Elvar gerir tveggja ára samning við Þór. Hann kemur til félagsins frá Völsungi en hann var hjá Þór á árunum 2020-22. Hann fór svo í Vestra og hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék 19 leiki er liðið hélt sér uppi í Bestu deildinni 2024.

FRÉTTIR25.02.2026, 23:18

Völsungur dregur liðið úr Lengjubikarnum (Staðfest)

Völsungur hefur tekið þá ákvörðun að draga lið sitt úr keppni í Lengjubikarnum. Liðið var í riðli með Þór, Val, Aftureldingu, íA og Gróttu en liðið hafði spilað tvo leiki þar sem liðið tapaði stórt gegn Þór og ÍA. Ástæðan er sú að það eru fáir leikmenn til taks um þessar mundir. Liðið er skipað ungum leikmönnum en eldri og reyndari eru að glima við meiðsli. Þá eru erlendir leikmenn á leið til landsins á næstu dögum.

FRÉTTIR25.02.2026, 14:02

Nökkvi í Gróttu (Staðfest)

Nökkvi Már Nökkvason er genginn til liðs við Gróttu og skrifar hann undir tveggja ára samning á Seltjarnarnesi. Nökkvi hefur leikið með ÍBV síðustu ár og lék með þeim 22 leiki síðasta sumar í Bestu deildinni. Hann á að baki 72 deildarleiki með ÍBV og 12 fyrir venslaliðið KFS. Hann er hinsvegar uppalinn í Garðabænum og lék upp yngri flokkana með Stjörnunni. Hann er eldri bróðir Guðmundar Baldvins Nökkvasonar sem spilar með Stjörnunni.

FRÉTTIR24.02.2026, 06:00

Barcelona fær ungstirni frá Norwich (Staðfest)

Barcelona hefur nælt í hinn 16 ára gamla Ajay Tavares frá Norwich. Hann hefur vakið áhuga fjölda evrópskra félaga og Norwich á rétt á bótum, þó hefur enska félagið ekki staðfest fjárhagslegar hliðar samningsins. Hann hefur spilað með U18 ára liði enska félagsins á tímabilinu en hann kom við sögu hjá aðalliðinu á undirbúningstímabilinu.

FRÉTTIR24.02.2026, 06:00

Guðmundur Rafn í Gróttu (Staðfest)

Guðmundur Rafn Ingason er genginn til liðs við Grottu frá Stjörnunni. Hann hefur einnig spilað með Fylki en hann var á láni hjá KFG síðasta sumar.

FRÉTTIR20.02.2026, 16:25

Jasmín Erla í Víking (Staðfest)

Víkingur hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en sóknarmaðurinn Jasmín Erla Ingadóttir er komin til félagsins frá Val.

FRÉTTIR20.02.2026, 13:38

Viðar Örn kominn heim á Selfoss (Staðfest)

Viðar Örn Kjartansson er kominn aftur heim á Selfoss en þetta staðfestir félagið í dag. Hann skrifar undir þriggja ára samning og mun klæðast treyju númer 9.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.