PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 13:38
Brynjar Ingi Erluson
Viðar Örn kominn heim á Selfoss (Staðfest)
Viðar Örn er kominn heim
Viðar Örn er kominn heim
Mynd: Selfoss
Viðar Örn Kjartansson er kominn aftur heim á Selfoss en þetta staðfestir félagið í dag. Hann skrifar undir þriggja ára samning og mun klæðast treyju númer 9.

Viðar Örn er 35 ára gamall framherji sem ólst upp á Selfossi og lék með öllum yngri flokkunum áður en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2006.

Hann lék sex tímabil með Selfyssingum, að undanskildu einu tímabili með Eyjamönnum, áður en hann fór til Fylkis eftir að hafa skorað 16 mörk í 1. deildinni.

Viðar staldraði stutt við hjá Fylki. Hann gerði 13 mörk í Pepsi deildinni og var í kjölfarið seldur til Vålerenga í Noregi. Ferill hans fór hratt upp á við.

Framherjinn varð markahæstur í norsku úrvalsdeildinni þar sem hann lék eitt tímabil og skoraði 25 mörk. Í heildina gerði hann 31 mark í 33 leikjum. Það árið var hann valinn leikmaður ársins hjá Nettavisen og var besti sóknarmaður ársins.

Þaðan hélt hann til Jiangsu í Kína og fór í kjölfarið að flakkaði á milli félaga um alla Evrópu.

Hann hefur einnig leikið með Rostov, Rubin, Maccabi Tel-Aviv, Yeni Malatyaspor, Malmö, Atromitos og CSKA 1948 áður en hann sneri heim árið 2024.

Viðar varði bikarmeistari með KA það árið en á síðasta ári fann hann sig ekki alveg. Hann spilaði 15 leiki en tókst ekki að skora og yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út eftir tímabilið.

Síðustu mánuði hafa verið háværar raddir um að hann gæti snúið heim á Selfoss. Það hefur lengi verið draumur Selfyssinga að fá hann aftur heim og sú stund runnin upp.

Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið og er ætlað að hjálpa liðinu að komast aftur upp í Lengjudeildina eftir að hafa fallið síðasta haust.

„Viðar hefur flutt búferla sína á Selfoss og lá því beinast við að taka slaginn með uppeldisfélagi sínu. Á traustum grunni mun hann halda áfram þeirri vegferð sem hófst seint á síðasta ári. Með markvissri þjálfun andlegri- og líkamlegri er knattspyrnudeild Selfoss ekki í nokkrum vafa um að innkoma hans í liðið hafa jákvæð áhrif á árangur liðsins á komandi árum,“ segir Þorsteinn Haukur Harðarson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Selfossi.


Athugasemdir
banner
banner