Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 18:16
Brynjar Ingi Erluson
Andrews stýrir Brentford til 2032 (Staðfest)
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford hefur verðlaunað írska stjórann Keith Andrews fyrir góða frammistöðu á þessari leiktíð með því að framlengja samning hans til 2032.

Andrews tók við Brentford síðasta sumar eftir að Thomas Frank hætti með liðið og fór til Tottenham.

Hann vann áður hjá MK Dons og Sheffield United, en var ráðinn til Brentford þar sem hann hélt utan um föstu leikatriðin áður en hann var ráðinn stjóri félagsins.

Það hefur gengið frábærlega í hans fyrsta aðalþjálfarastarfi en Brentford er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 40 stig og lifir vonin um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili mjög svo góðu lífi.

Brentford er í skýjunum með Andrews og ákveðið að framlengja samning hans til 2032, þrátt fyrir að hann hafi átt tvö og hálft ár eftir af samningnum.

„Keith hefur gert ótrúlega hluti, liðið er að spila vel og við höfum lagað hluti sem við töldum okkur geta gert betur í. Hann smellpassar fyrir félagið og hvernig við viljum vinna, þar sem hann nær að hámarka getu leikmanna og þjálfara.“

„Allir hjá Brentford verða ánægðir að heyra að Keith verði áfram til lengri tíma og er ég spenntur að sjá hvað við getum afrekað saman á næstu tímabilum,“
sagði Phil Giles, yfirmaður fótboltamála hjá Brentford.


Athugasemdir
banner