Fotbolti.net
26.02.26 - 20:09
Brynjar Ingi Erluson

Þór fær kantmann frá Kalmar (Staðfest) - Spilaði í MLS-deildinni

Þór fær kantmann frá Kalmar (Staðfest) - Spilaði í MLS-deildinni
Canon

Mynd: Þór

Nýliðar Þórs hafa fengið Ganamanninn Isaac Antanga frá sænska félaginu Kalmar FF en hann semur til þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu á Þór/Sport í dag.
Atanga er 26 ára gamall vængmaður sem fór í gegnum Right to Dream-akademíuna í Gana áður en hann gekk í raðir danska úrvalsdeildarfélagsins Nordsjælland þegar hann var 18 ára.

Hann skoraði 12 mörk í 58 leikjum með Nordsjælland frá 2019 til 2021 áður en hann fór til Cincinnati í Bandaríkjunum.

Einnig lék hann fyrir Göztepe í Tyrklandi og Álasund í Noregi áður en hann hélt til Kalmar á síðasta ári.

Þór náði samkomulagi við Kalmar um Atanga og er hann genginn í raðir félagsins á þriggja ára samning.

Hann mun koma til móts við hópinn í æfingaferð félagsins á Marbella á Spáni um helgina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.