Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fim 19. febrúar 2026 18:53
Brynjar Ingi Erluson
Dortmund fær brasilískan bakvörð í sumar (Staðfest)
Mynd: Borussia Dortmund
Þýska félagið Borussia Dortmund hefur staðfest kaupin á brasilíska vinstri bakverðinum Kaua Prates frá Cruzeiro en hann mun ganga í raðir félagsins í sumar.

Prates er 17 ára gamall sem þreytti frumraun sína með Cruzeiro í maí á síðasta ári.

Hann er fastamaður í U17 ára landsliði Brasilíumanna og talinn einn efnilegasti bakvörður landsins.

Dortmund vann baráttuna um þennan öfluga leikmann en hann mun formlega ganga í raðir félagsins þegar hann fagnar 18 ára afmæli sínu í ágúst. Samningurinn mun gilda til 2031.


Athugasemdir
banner
banner
banner