Fotbolti.net
20.02.26 - 16:25
Brynjar Ingi Erluson

Jasmín Erla í Víking (Staðfest)

Jasmín Erla er komin í Víkina

Jasmín Erla er komin í Víkina

Canon

Mynd: Víkingur R.

Hertz
Víkingur hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en sóknarmaðurinn Jasmín Erla Ingadóttir er komin til félagsins frá Val.
Jasmín útskýrir riftunina
TENGT EFNI

Jasmín útskýrir riftunina

Jasmín, sem er 27 ára gömul, ólst upp hjá Fjölni en skipti yfir í Fylki árið 2014 þar sem hún þreytti frumraun sína með meistaraflokki.

Hún hefur einnig spilað með FH, Stjörnunni og Val hér heima, en hún lék með Apollon Limassol á Kýpur haustið 2019 og út tímabilið þar sem hún gerði fimm mörk í fjórtán leikjum.

Framherjinn var markahæst í Bestu deildinni með Stjörnunni árið 2022 með ellefu mörk.

Á síðasta tímabili spilaði hún 19 leiki og skoraði eitt mark fyrir Val, en rifti samningi sínum við félagið í desember. Hún útskýrði riftunina í viðtali við Fótbolta.net, en þar talaði hún um þann vendipunkt er Pétur Pétursson var látinn fara.

Jasmín er nú komin með nýtt lið en hún hefur samið um að leika með Víkingum í Bestu deildinni í sumar.

Hún á 23 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað tvö mörk.

Víkingur hafnaði í 5. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili með 29 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.