PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Haraldur Ágúst til Njarðvíkur (Staðfest)
Viðbeinsbrotinn Sölvi Steinn skrifar undir
Lengjudeildin
Mynd: Njarðvík
Mynd: Njarðvík
Haraldur Ágúst Brynjarsson mun leika fyrir Njarðvík á lánssamningi frá Íslandsmeisturum Víkings í sumar.

Haraldur Ágúst er hægri bakvörður fæddur 2007 sem kom við sögu í einum deildarleik með Víkingi í fyrra.

Hann fær að reyna fyrir sér í Lengjudeildinni þar sem Njarðvík hefur verið í toppbaráttu og stefnir upp í efstu deild.

Haraldur þykir bráðefnilegur og er með tíu leiki að baki fyrir unglingalandslið Íslands, þar af fimm fyrir U18 liðið.

„Knattspyrnudeildin býður Harald hjartanlega velkominn til Njarðvíkur og hlakkar til að sjá hann á vellinum í Njarðvíkur treyjunni í sumar!" segir í tilkynningu frá Njarðvík.

Sölvi Steinn Sigfússon, jafnaldri Haralds, er á sama tíma búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við Njarðvík. Sá samningur gildir næstu fjögur árin, út keppnistímabilið 2029.

Sölvi Steinn á einn leik að baki með meistaraflokki í Lengjubikar karla og hefur nýtt þjálfarateymi Njarðvíkur mikla trú á leikmanninum sem hefur æft vel í vetur og staðið sig prýðilega í þónokkrum æfingaleikjum.

Sölvi mun þó ekki koma við sögu í næstu leikjum Njarðvíkur eftir að hann viðbeinsbrotnaði á æfingu á dögunum.


Athugasemdir
banner
banner