Afturelding hefur sótt þær Steinunni Lind Hróarsdóttur og Saray Vela Menchón til félagsins fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar en báðar þekkja deildina afar vel.
Steinunn Lind er fædd 2007 og kemur til félagsins frá ÍR en hún skrifar undir samning út næstu tvö tímabil. Hún er miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað aftar á vellinum.
Hún lék með yngri flokkum Vals og tók tvö tímabil í 2. deildinni með KH áður en hún gekk í raðir ÍR fyrir síðasta tímabil.
Þar lék hún 15 leiki og skoraði eitt mark með ÍR-ingum, en mun nú taka slaginn með Aftureldingu.
Saray er fædd árið 1993 og spilað síðustu tvö tímabil með Einherja og Sindra.
Hún er öflugur sóknarmaður sem getur einnig spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður.
Sterk viðbót við leikmannahóp Aftureldingar sem ætlar sér stóra hluti í 2. deildinni í sumar.
Athugasemdir



