Fotbolti.net
25.02.26 - 14:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nökkvi í Gróttu (Staðfest)

Nökkvi í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta

Lengjudeildin
Nökkvi Már Nökkvason er genginn til liðs við Gróttu og skrifar hann undir tveggja ára samning á Seltjarnarnesi.

Nökkvi hefur leikið með ÍBV síðustu ár og lék með þeim 22 leiki síðasta sumar í Bestu deildinni. Hann á að baki 72 deildarleiki með ÍBV og 12 fyrir venslaliðið KFS.

Hann er hinsvegar uppalinn í Garðabænum og lék upp yngri flokkana með Stjörnunni. Hann er eldri bróðir Guðmundar Baldvins Nökkvasonar sem spilar með Stjörnunni.
Hann er 25 ára fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leyst hlutverk í varnarlínunni og á miðsvæðinu. Hann er fjórði leikmaðurinn sem Grótta krækir í þennan veturinn.

Komnir
Nökkvi Már Nökkvason frá ÍBV
Guðmundur Rafn Ingason frá KFG
Jónatan Ari Bragason frá Leikni
Tristan Freyr Ingólfsson frá Stjörnunni
Andri Freyr Jónasson alfarið frá Aftureldingu (var á láni)

Farnir
Pétur Theódór Árnason hættur
Marvin Darri Steinarsson í Vestra
Marciano Aziz til Þýskalands
Þórður Sveinn Einarsson í Val (var á láni)

Samningslausir
Kristófer Melsted
Björgvin Stefánsson
Valdimar Daði Sævarsson
Benedikt Aron Albertsson

Nökkvi í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.