Svava Rós komin til Gotham (Staðfest)

Svava Rós Guðmundsdóttir er nýr leikmaður Gotham FC í bandaríska kvennaboltanum.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25192 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Svava Rós Guðmundsdóttir er nýr leikmaður Gotham FC í bandaríska kvennaboltanum.

Það voru að berast áhugaverð tíðindi því Lárus Rúnar Grétarsson, Lalli Gré, er mættur aftur til starfa hjá Úlfunum - venslafélagi Fram. Lárus snýr aftur eftir eins árs fjarveru. Hann var þjálfari liðsins tímabilið 2021 en var ekki með liðið í fyrra. Þá var Haukur Hilmarsson þjálfari liðsins. Úlfarnir verða í A-riðli 5. deildar í sumar.
Framarar tilkynntu í dag að Stefán Þór Hannesson hefði framlengt samning sinn við félagið. Samningurinn er til tveggja ára en hann mun leika á láni hjá Ægi í sumar. Stefán verður 27 ára í mars. Hann kom til Fram frá Hamri fyrir tímabilið 2021. Í yngri flokkunum lék hann með sameiginlegu liði Hamars og Ægis.
KA hefur fengið Pætur Petersen í sínar raðir, Færeyingurinn kemur frá HB í heimalandinu og skrifar undir þriggja ára samning á Akureyri. Pætur er öflugur framherji sem getur einnig spilað á báðum köntum. Á síðasta tímabili lék hann vel með HB, braut sér leið inn í færeyska landsliðið og lék í nóvember sína fyrstu tvo landsleiki. Þar áður hafði hann leikið fyrir öll yngrilandslið Færeyja.

Ajax er opinberlega í þjálfaraleit eftir að hafa rekið Alfred Schreuder, sem tók við þjálfarastarfi félagsins af Erik ten Hag síðasta sumar.

Fiorentina og Napoli voru að skipta á markvörðum þar sem Salvatore Sirigu er farinn til Fiorentina á frjálsri sölu og mun þar berjast við Pietro Terracciano um sæti í byrjunarliðinu.

Selfoss er búið að krækja í afar fjölhæfan leikmann sem kemur úr röðum KF og mun auka breiddina fyrir komandi leiktíð í Lengjudeildinni.

Luton Town er búið að krækja í bakvörðinn efnilega Cody Drameh á lánssamningi út tímabilið.

Hægri bakvörðurinn James Bree er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við Southampton. Bree getur einnig spilað sem miðvörður og er fenginn til að auka breiddina í varnarlínunni.

Bournemouth hefur staðfest að Darren Randolph sé genginn í raðir félagsins. Markvörðurinn skrifar undir eins og hálfs árs samning við félagið. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og ég er klár í að byrja vinnuna strax. Ég þekki þrjá stráka hérna og það hjálpar. Þeir sögðu mér góða hluti um félagið og svæðið eins og aðrir hafa svo sem sagt við mig áður. Það hjálpaði við að taka ákvörðun."
Mikael Egill Ellertsson er genginn í raðir Venezia í ítölsku B-deildinni og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027. Hann kemur til félagsins frá Spezia á sama degi og Spezia kaupir pólska varnarmanninn Przemyslaw Wisniewski frá Venezia.
Orri Sigurjónsson er genginn í raðir Fram, frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið og kemur frá Þór þar sem hann hafði leikið allan sinn feril til þessa.
Stjarnan hefur fengið markvörðinn Árna Snæ Ólafsson í sínar raðir. Frá þessu greinir Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum. Árni hefur allan sinn feril leikið með ÍA en söðlar nú um og verður með Stjörnunni í sumar. Alls á hann að baki 255 leiki fyrir ÍA. Hann fer væntanlega í samkeppni við Harald Björnsson sem hefur verið aðalmarkvörður Stjörnunnar undanfarin ár.
Duncan Ferguson, fyrrum framherji Everton, var í dag ráðinn stjóri Forest Green sem er í ensku C-deildinni, League One. „Ég hef beðið eftir þessu lengi. Ég er mjög þakklátur að fá þetta tækifæri. Þetta gerðist mjög hratt. Ég tók símtal í fyrrakvöld og var beðinn um að koma til að ræða málin. Við ræddum málin, ég fór aftur til Liverpool, tók ákvörðun og kom aftur hingað," sagði Ferguson í dag.
Knattspyrnudeild Grindavíkur tilkynnti nýjan leikmann á samfélagsmiðlum í gær en bandaríska fótboltakonan Arianna Veland er komin til félagsins og mun spila með liðinu á komandi tímabili.
Enski markvörðurinn Dan Bentley er genginn til liðs við Wolves frá Bristol City en hann skrifaði í kvöld undir tveggja og hálfs árs samning við úrvalsdeildarfélagið.
Enska B-deildarfélagið Burnley hefur fest kaup á Suður-Afríkumanninum Lyle Foster frá Westerlo í Belgíu. Félagið tilkynnti kaupin í dag.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar, frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum í dag. Þar segir að hún sé að snúa aftur heim eftir ellefu ára dvöl erlendis. „Gunnhildi þarf ekki að kynna fyrir Stjörnufjölskyldunni en hún var síðast hjá okkur árið 2012 áður en hún hélt út í atvinnumennsku," segir í tilkynningunni.
Tottenham hefur fengið Arnaut Danjuma á láni frá Villarreal út tímabilið. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Spurs í janúarglugganum. Danjuma var á leiðinni til Everton og var búinn að gangast undir læknisskoðun og samþykkja kaup og kjör. Hann átti bara eftir að skrifa undir þegar Tottenham skarst í leikinn.
Kolbeinn Birgir Finnsson er genginn í raðir danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og með liðinu spila Sævar Atli Magnússon og Alfreð Finnbogason. Kolbeinn er 23 ára, fyrrum leikmaður Fylkis, og kemur frá Borussia Dortmund þar sem hann spilaði með varaliðinu í þýsku C-deildinni. Lyngby er í neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og ekkert annað en fall beint aftur niður í B-deildina virðist blasa við liðinu. Hjá Lyngby er hann væntanlega hugsaður sem vinstri bakvörður en hjá varaliði Dortmund spilaði hann einnig á vinstri kanti og sem miðvörður vinstra megin í þriggja miðvarða kerfi.