Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 27. janúar 2023 18:25
Ívan Guðjón Baldursson
Svava Rós komin til Gotham (Staðfest)
Mynd: Aðsend

Svava Rós Guðmundsdóttir er nýr leikmaður Gotham FC í bandaríska kvennaboltanum.


Gotham endaði í neðsta sæti kvennadeildarinnar á síðustu leiktíð með aðeins 16 mörk skoruð í 22 leikjum. Svava Rós er fengin til að hjálpa við að bæta þær tölur.

Svava er 27 ára og getur leyst ýmsar stöður af hólmi í fremstu víglínu. Hún er öflugur framherji og hefur verið að gera góða hluti með Brann í norska boltanum að undanförnu en þar áður var hún í Íslendingaliði Kristianstad og Roa í Noregi.

Hún er uppalin hjá Val en lék einnig fyrir Breiðablik áður en hún flutti til útlanda. Svava á 2 mörk í 42 A-landsleikjum.


Athugasemdir
banner
banner