Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 27. janúar 2023 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pætur í KA (Staðfest)
Mættur í gult.
Mættur í gult.
Mynd: KA
KA hefur fengið Pætur Petersen í sínar raðir, Færeyingurinn kemur frá HB í heimalandinu og skrifar undir þriggja ára samning á Akureyri.

Pætur er öflugur framherji sem getur einnig spilað á báðum köntum. Á síðasta tímabili lék hann vel með HB, braut sér leið inn í færeyska landsliðið og lék í nóvember sína fyrstu tvo landsleiki. Þar áður hafði hann leikið fyrir öll yngrilandslið Færeyja.

Úr tilkynningu KA:
„Með liði HB varð Pætur færeyskur meistari árið 2020 og bikarmeistari árin 2019 og 2020 auk þess að vinna Super Cup 2019 og 2021. Þá hefur hann tekið þátt í þó nokkrum evrópuleikjum undanfarin ár sem ætti að nýtast vel með KA liðinu þegar við leikum okkar fyrstu Evrópuleiki frá árinu 2003."

Pætur hefur æft með KA liðinu að undanförnu og erum við afar spennt að sjá til hans í gulu og bláu treyjunni á komandi sumri."


Hann er þriðji leikmaðurinn sem KA fær í sínar raðir eftir að hafa endað í 2. sæti á síðasta tímabili.

Komnir
Birgir Baldvinsson frá Leikni (var á láni)
Harley Willard frá Þór
Pætur Petersen frá HB í Færeyjum

Farnir
Bryan Van Den Bogaert
Gaber Dobrovoljc
Hallgrímur Jónasson (orðinn þjálfari liðsins)
Nökkvi Þeyr Þórisson til Beerschot
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner