Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25085 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.06.2026, 18:30

Victor Munoz til Liverpool (Staðfest)

Spænski landsliðsmaðurinn Victor Munoz er genginn í raðir Liverpool frá Osasuna fyrir tæplega 35 milljónir punda. Þetta tilkynnir félagið á heimasíðu sinni.

FRÉTTIR18.06.2026, 11:07

Konate til Real Madrid (Staðfest)

Ibrahima Konate hefur gengið til liðs við Real Madrid og skrifar hann undir fjögurra ára samning við félagið. Hann kemur á frjálsri sölu frá Liverpool. Konate gekk til liðs við Liverpool frá RB Leipzig árið 2021 og spilaði hann 183 leiki fyrir félagið. Samningsviðræður hans og Liverpool strönduðu vegna launakrafa.

FRÉTTIR17.06.2026, 10:25

Freyr tekinn við Rosenborg (Staðfest)

Norska stórveldið Rosenborg í Þrándheimi hefur staðfest ráðningu á Frey Alexanderssyni sem nýjum aðalþjálfara félagsins. Freyr skrifaði undir samning til 2029 og mun formlega vera kynntur á fréttamannafundi á föstudag. <i>„Ég er virkilega stoltur og þakklátur fyrir þann mikla áhuga sem ég fékk frá stjórn félagsins. Okkar viðræður hafa verið hreinskilnar, opnar og heiðarlegar. Ég hef mikla trú á því að saman getum við komið sigursælasta félagi Noregs þangað sem það á heima,"</i> segir Freyr við heimasíðu félagsins.

FRÉTTIR16.06.2026, 16:31

Amorim tekinn við AC Milan (Staðfest)

Ruben Amorim hefur tekið við sem nýr stjóri AC Milan. Hann tekkur við af Massimiliano Allegri og skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika um árs framlengingu. Amorim var rekinn sem stjóri Man Utd í upphafi árs. Portúgalinn stýrði United alls í fjórtán mánuði en stóðst ekki væntingar. Þar áður gerði hann góða hluti með Sporting í heimalandinu. AC Milan endaði í fimmta sæti undir stjórn Allegri á nýliðnu tímabili og missti liðið af Meistaradeildarsæti eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni. Allegri fékk reisupassann að tímabilinu loknu en hann verður kynntur sem nýr stjóri Napoli síðar í vikunni.

FRÉTTIR16.06.2026, 10:35

Rudiger framlengir við Real (Staðfest)

Antonio Rudiger hefur samþykkt nýjan eins árs samning við Real Madrid. Þýski landsliðsmiðvörðurinn hefði orðið samningslaus í lok mánaðar og stefndi á tíma ekki í að hann fengi nýjan samning hjá Real.

FRÉTTIR16.06.2026, 08:25

Renard tekinn við Túnis (Staðfest) - Rekinn frá Sádi-Arabíu rétt fyrir HM

Franski blaðamaðurinn Romain Molina greindi frá því að fótboltasamband Túnis hafi síðasta sólarhringinn átt í viðræðum við Herve Renard um að taka við karlalandsliðinu sem spilar á HM. Nú er sambandið búið að staðfesta að Renard hafi skrifað undir tímabundinn samning og stýri Túnis út heimsmeistaramótið.

FRÉTTIR15.06.2026, 19:10

Juventus kaupir Boga (Staðfest)

Ítalska félagið Juventus hefur virkjað kaupákvæði Fílabeinsstrendingsins Jeremie Boga, en félagið greiðir Nice um fimm milljónir evra til að gera skiptin varanleg. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.

FRÉTTIR15.06.2026, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Óléttupróf og bræði

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Epísk auglýsing, bræði landsliðsþjálfarans og fréttir af brottrekstri Jökuls í Garðabæ eru á meðal þess sem má finna á topplista vikunnar.

FRÉTTIR15.06.2026, 15:38

Sarri tekinn við Atalanta (Staðfest)

Maurizio Sarri er tekinn við Atalanta en liðið mun spila í Sambandsdeildinni á komandi tímabili. Sarri er 67 ár og þarfnast ekki kynningar. Hann hefur stýrt í rúmlega 800 leikjum, vann Evrópudeildina með Chelsea, ítölsku deildina með Juventus og sló stigamet Napoli þrjú tímabil í röð. Hann lét af störfum hjá Lazio nýlega en liðið komst í bikarúrslit undir hans stjórn á liðnu tímabili en beið þar lægri hlut gegn Inter, sem vann tvöfalt. Hjá Atalanta mun hann starfa með íþróttastjóranum Cristiano Giuntoli að nýju en þeir tveir unnu saman hjá Napoli á sínum tíma.

FRÉTTIR15.06.2026, 15:22

Peixoto tekinn við Úlfunum (Staðfest)

Cesar Peixoto hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Wolverhampton Wanderers og hefur skrifað undir tveggja ára samning. Peixoto er 46 ára og kom frá portúgalska félaginu Gil Vicente. Hann tekur við Úlfunum af Rob Edwards sem var rekinn í síðustu viku.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.