Fotbolti.net
16.06.26 - 08:25
Brynjar Ingi Erluson

Renard tekinn við Túnis (Staðfest) - Rekinn frá Sádi-Arabíu rétt fyrir HM

Renard stýrir Túnis gegn Japan aðfaranótt sunnudags

Renard stýrir Túnis gegn Japan aðfaranótt sunnudags

Canon

Mynd: EPA

Franski blaðamaðurinn Romain Molina greindi frá því að fótboltasamband Túnis hafi síðasta sólarhringinn átt í viðræðum við Herve Renard um að taka við karlalandsliðinu sem spilar á HM.

Nú er sambandið búið að staðfesta að Renard hafi skrifað undir tímabundinn samning og stýri Túnis út heimsmeistaramótið.
Fyrsti þjálfarinn rekinn á HM - Túnisar reiðir eftir skellinn
TENGT EFNI

Fyrsti þjálfarinn rekinn á HM - Túnisar reiðir eftir skellinn

Túnis tók dramatíska ákvörðun og rak Sabri Lamouchi eftir 5-1 tapið í fyrsta leik þjóðarinnar í riðlakeppni HM.

Mondher Kebaier var sagður eiga að stýra liðinu út heimsmeistaramótið en óvænt tóku málin aðra stefnu. M6 greindi fyrst frá því að Herve Renard, sem stýrði Marokkó á HM 2018 og Sádi-Arabíu á HM 2022, væri í viðræðum um að taka við landsliði Túnis og það er nú frágengið.

Renard stýrir Túnis gegn Japan aðfaranótt sunnudags. Hann var þjálfari Sádi-Arabíu en var rekinn innan við tveimur mánuðum fyrir HM. Renard á tvo Afríkumeistaratitla á ferilskrá sinni; með Sambíu og Fílabeinsströndinni.

Molina telur forráðamenn fótboltasambandsins vera að reyna að bjarga sér fyrir horn með því að fá þekktan þjálfara í starfið. Að hans mati liggur vandinn í túniskum fótbolta mun dýpra og þessi ráðning ein og sér leysi ekki þau vandamál.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Renard tekinn við Túnis (Staðfest) - Rekinn frá Sádi-Arabíu rétt fyrir HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.