Brighton fær hægri bakvörð frá Olympiakos (Staðfest)

Mynd: Brighton

Mynd: Brighton
Brighton hefur fest kaup á portúgalska hægri bakverðinum Costinha frá gríska stórveldinu Olympiakos fyrir 8 milljónir punda.
Þessi 26 ára gamli varnarmaður skrifaði undir fimm ára samning hjá Brighton í dag.
Hann hefur spilað stórt hlutverk í liði Olympiakos síðustu tvö ár eða síðan hann kom frá portúgalska félaginu Rio Ave.
Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, er spenntur fyrir því að sjá Costinha í Brighton-treyjunni.
„Costinha er leikmaður sem við höfum fylgst með í einhvern tíma. Hann hefur varnarlegu getuna, ákefðina og skilninginn sem við metum mikils og teljum við að hann verði frábær viðbót við hópin.
„Honum líður vel bæði með og án bolta, og mun veita mika samkeppni í hægri bakvarðarstöðunni. Ég er í skýjunum með að hann hafi ákveðið að velja það að þróa feril sinn áfram með okkur í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Hürzeler.

Albion have agreed the signing of Costinha from Olympiacos on a five-year contract for undisclosed terms, subject to international clearance. ????
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) June 15, 2026