Victor Munoz til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Liverpool FC

Mynd: Liverpool FC
Spænsk landsliðsmaðurinn Victor Munoz er genginn í raðir Liverpool frá Osasuna fyrir tæplega 35 milljónir punda. Þetta tilkynnir félagið á heimasíðu sinni.

TENGT EFNI
Spánverjinn sem Liverpool er að kaupa líkari Díaz en Salah
Munoz er 22 ára gamall vængmaður sem átti frábært tímabil með Osasuna á síðustu leiktíð.
Hann kom að tólf mörkum á sínu fyrsta heila tímabili í efstu deild, eftir að hafa áður þreytt frumraun sína með Real Madrid. Hann fór í gegnum akademíur bæði Barcelona og Real Madrid.
Spánverjinn var á leið til Newcastle United og hafði samþykkt að ganga í raðir félagsins áður en Liverpool stal honum. Hann gekkst undir læknisskoðun í Bandaríkjunum áður en hann skrifaði undir sex ára samning.
Liverpool borgaði tæplega 35 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem samsvarar klásúlunni í samningi hans við Osasuna, og hefur félagið nú staðfest komu hans.
Þetta eru fyrstu kaup Andoni Iraola síðan hann tók við sem stjóri Liverpool eftir að Arne Slot var rekinn.

We have agreed a deal to sign Victor Munoz from Osasuna, subject to a successful work permit application and international clearance ????
— Liverpool FC (@LFC) June 18, 2026