Fotbolti.net
15.06.26 - 19:04
Brynjar Ingi Erluson

Sage ráðinn stjóri Crystal Palace (Staðfest)

Sage ráðinn stjóri Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Crystal Palace

Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace hafa ráðið Pierre Sage sem nýjan stjóra félagsins en samningur hans er til þriggja ára.
Hinn 47 ára gamli Sage tekur við af Oliver Glasner, sem hætti hjá félaginu eftir síðustu leiktíð.

Sage þjálfaði franska liðið Lens á síðustu leiktíð og var valinn þjálfari tímabilsins í frönsku deildinni. Lens hafnaði í öðru sæti undir hans stjórn og komst í Meistaradeildina, auk þess að vinna franska bikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Áður stýrði hann Lyon til bráðabirgða og kom liðinu í Evrópudeildina tímabilið 2024-2025.

Palace hafði einnig áhuga á Andoni Iraola, sem ákvað að velja Liverpool, og þá voru Frank Lampard, Kieran McKenna og Sean Dyche einnig orðaðir við starfið.

Sage þarf að feta í stór fótspor en Glasner vann þrjá titla á tíma sínum hjá Palace. Hann vann enska bikarinn á síðasta ári, samfélagsskjöldinn og Sambandsdeildina í síðasta mánuði.

Jamal Alioui fylgir Sage til Palace, en hann var aðstoðarmaður hans hjá Lens.

„Oliver Glasner afrekaði stórkostlega hluti og núna þarf ég að gera það sama. Þessa vegna komum við hingað með mikinn metnað. Dýnamíkinn er mjög jákvæð og við erum með sama hugarfar. „Við unnum í fyrra og viljum halda áfram á sömu braut; hjá nýju félagi, í nýju verkefni, en með mikla sigurhefð,“ sagði Sage.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.