Hilmir Rafn keyptur til Tékklands (Staðfest)

Mynd: Sigma Olomouc

Mynd: Sigma Olomouc
Tékkneska félagið Sigma Olomouc hefur fest kaup á íslenska framherjanum Hilmi Rafni Mikaelssyni, sem kemur frá Noregsmeisturum Viking.
Hilmir Rafn er 22 ára gamall og hefur verið í atvinnumennsku frá sautján ára aldri.
Hann er uppalinn í Fjölni en fór til Venezia fyrir fimm árum. Þar lék hann með unglingaliðum félagsins áður en hann var færður upp í aðalliðið.
Á tíma sínum hjá Venezia var hann tvisvar lánaður til Noregs, fyrst til Tromso og síðar til Kristiansund, áður en hann gekk í raðir Viking á fjögurra ára samningi á síðasta ári.
Hilmir skoraði tvö mörk í tólf deildarleikjum þegar Viking fagnaði Noregsmeistaratitlinum á síðasta ári.
Hann er nú genginn til liðs við Sigma í Tékklandi, sem lék í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Hilmir segir að félagið hafi reynt að fá hann í vetur og að hann sé ánægður með að félagið hafi endurvakið áhuga sinn í sumar.
„Ég hlakka mikið til þessarar nýju áskorunar. Ég veit að Sigma vann bikarinn fyrir ári og lék í Evrópukeppni þar sem liðinu gekk vel. Félagið hafði áhuga á mér strax í vetur og ég kann að meta að það hafi haft samband aftur hálfu ári síðar. Mér líst vel á leikvanginn og borgina og ég get ekki beðið eftir að hefja æfingar með nýju liðsfélögunum,“ sagði Hilmir við undirskrift.
Sigma hefur unnið tékkneska bikarinn tvisvar og fór alla leið í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar á síðustu leiktíð.

???? Led v žilách.
— SK Sigma Olomouc (@SKSigmaOlomouc) June 18, 2026
???? Ohe? v zakon?ení.
???????? Hilmir Rafn Mikaelsson. ?????? pic.twitter.com/EtSvg9ZhDv