Ráðinn til Feyenoord fimm dögum eftir brottreksturinn frá Liverpool (Staðfest)

Van Bronckhorst var aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool

Mynd: Rangers

Giovanni van Bronckhorst er tekinn við hollenska liðinu Feyenoord en hann kemur til félagsins frá Liverpool. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á ári til viðbótar.
Van Bronckhorst er með sterk tengsl til félagsins en hann spilaði hjá félaginu frá 1993 til 1998 og aftur frá 2007 til 20210. Sem fyrirliði leiddi hann Feyenoord til sigurs í hollenska bikarnum árið 2008.
Hann náði enn betri árangri þegar hann tók við sem þjálfari liðsins árið 2015. Hann varð hollenskur deildarmeistari árið 2017 og vann þá bikarinn tvisvar, ásamt því að vinna Johan Cruyff-skjöldinn í tvígang.
Hann hætti með liðið árið 2019 og stýrði meðal annars Guangzhou, Rangers og Besiktas áður en hann tók við sem aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool fyrir síðustu leiktíð.
Sipke Hulshoff, annar aðstoðarmanna Slot hjá Liverpool, verður hægri hönd Van Bronckhorst. Þeir voru báðir látnir taka poka sinn hjá Liverpool fyrir fimm dögum, aðeins tveimur vikum eftir brottrekstur Slot.

Giovanni van Bronckhorst, welcome home. pic.twitter.com/bgK7IJyLSL
— Feyenoord Rotterdam (@Feyenoord) June 17, 2026