Zaniolo til Udinese (Staðfest) - Greiða fimm milljónir

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Udinese hefur fest kaup á ítalska sóknartengiliðunum Nicolo Zaniolo frá Galatasaray.
Zaniolo, sem er 26 ára gamall, eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Udinese frá Galatasaray.
Hann lék 32 deildarleiki og skoraði fimm mörk. Udinese var mjög ánægt með frammistöðu leikmannsins og hefur nú virkjað fimm milljóna evra kaupákvæði í lánssamningnum.
Ítalinn skrifaði í kjölfarið undir þriggja ára samning við Udinese, en félagið staðfesti kaupin á heimasíðu sinni.
Zaniolo ólst upp hjá Fiorentina en hefur einnig leikið með Roma, Atalanta, Aston Villa, Inter og Virtus Entella á ferlinum. Hann á að baki 19 landsleiki og tvö mörk fyrir A-landslið Ítalíu.

?? ZANIOLO 2??0??2??9??
— Udinese Calcio (@Udinese_1896) June 15, 2026
Nicolò è bianconero a titolo definitivo ???????? pic.twitter.com/r9ynYlTu0m