Rekinn eftir fall niður í C-deildina (Staðfest)

Mynd: Oxford United/X

Mynd: Oxford United/X
Matt Bloomfield hefur verið látinn taka poka sinn hjá enska félaginu Oxford United eftir að hann féll með liðið niður í C-deildina.
Hinn 42 ára gamli Bloomfield tók við Oxford í janúar eftir að Gary Rowett var rekinn.
Á þessu hálfa ári náði liðið í nokkur góð úrslit undir hans stjórn og frammistaðan var ágæt, en það dugði ekki til að bjarga liðinu frá falli.
Hann var látinn fara í gær, sex vikum eftir að deildinni lauk, en ákvörðunin tengist breytingum í stjórn félagsins.
Fyrrum fótboltamaðurinn og umboðsmaðurinn Dusan Bogdanovic tók við sem stjórnarformaður og þar sem hann hafði litla reynslu af enska boltanum vildi hann koma sér betur inn í hlutina áður en ákvörðun yrði tekin um framtíð Bloomfield.
Félagið hefur heldur ekki styrkt leikmannahópinn vegna yfirvofandi þjálfarabreytinga, en það mun kynna eftirmann Bloomfield á næstu vikum og í kjölfarið fara í að styrkja hópinn fyrir komandi átök í C-deildinni.

Oxford United can confirm the departure of Matt Bloomfield as Men’s First Team Head Coach.
— Oxford United (@OUFCOfficial) June 20, 2026
The Club would like to thank Matt for his efforts and wish him every success in the future.