Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25090 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.11.2025, 14:55

Hellberg ráðinn til Middlesbrough (Staðfest)

Svíinn Kim Hellberg hefur formlega verið ráðinn stjóri Middlesbrough. Hann lætur af störfum hjá Hammarby til að taka við af Rob Edwards sem hætti til að taka við Wolves. <i>„Kim er einstaklingur sem ég hef fylgst með í nokkurn tíma. Hann er spennandi þjálfari sem hefur vakið mikla athygli og gerði virkilega vel hjá Hammarby. Hann var strax ofarlega á blaði,"</i> segir Kieran Scott, yfirmaður fótboltamála hjá Boro.

FRÉTTIR24.11.2025, 13:00

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Meistararnir í ruglinu

Skotið á íslenska landsliðið, Liverpool tapaði 3-0 og Steven Caulker rifti samningi við Stjörnuna. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR24.11.2025, 06:00

Fylkir fær tvo leikmenn (Staðfest)

Þær Emilía Sif Sævarsdóttir og Arna Ósk Arnarsdóttir eru komnar til Fylkis og spila meðliðinu í 2. deild næsta sumar. Emilía Sif er uppalin í Fylki en hún kemur frá Fjölni þar sem hún spilaði frá 2022. Hún hefur spilað 28 leiki og skorað fimm mörk.

FRÉTTIR21.11.2025, 23:32

Marc McAusland í Víði (Staðfest)

Marc McAusland er genginn til liðs við Víði en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið. Hann er 37 ára gamall Skoti en hann gengur til liðs við félagið frá ÍR en hann yfirgaf Breiðholtsfélagið á dögunum. Hann hjálpaði ÍR-ingum að komast í umspil um sæti í Bestu deildina á fyrsta tímabili sínu og var valinn á bekkinn í lið ársins hér á Fótbolta.net.

FRÉTTIR21.11.2025, 19:30

Aron Snær yfirgefur Njarðvík (Staðfest) - Á leið í Þrótt

Aron Snær Friðriksson hefur yfirgefið Njarðvík en hann hefur ákveðið að leita á önnur mið. Hann er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í Þrótt Reykjavík. Hann er 28 ára en hann fékk fæst mörk á sig í Lengjudeildinni síðasta sumar eða 24 mörk í 21 leik.

FRÉTTIR21.11.2025, 18:27

Eiður Atli til ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur keypt hinn 23 ára gamla Eið Atla Rúnarsson frá HK. Hann er uppalinn hjá HK en hann var á láni hjá ÍBV sumarið 2024. Hann spilaði 19 leiki þegar ÍBV vann Lengjudeildina.

FRÉTTIR21.11.2025, 16:00

Sesar Örn í ÍBV (Staðfest)

Sesar Örn Harðarson er genginn í raðir ÍBV en hann kemur frá grönnunum í Selfossi. Sesar er 19 ára sóknarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við ÍBV. ÍBV endaði í 9. sæti Bestu deildarinnar á tímabilinu en Selfoss endaði í 11. sæti Lengjudeildarinnar og féll niður í 2. deild.

FRÉTTIR21.11.2025, 14:30

Víkingur fær einn efnilegasta leikmann Lengjudeildarinnar (Staðfest)

Elísa Birta Káradóttir er gengin í raðir Víkings en hún kemur frá uppeldisfélaginu HK. Samningur hennar við HK rennur út um mánaðamótin. Elísa Birta er fædd árið 2009 og er gríðarlega efnileg. Þrátt fyrir ungan aldur var tímabilið í sumar hennar annað tímabil með meistaraflokki. Hún skoraði þrjú mörk í sextán leikjum í Lengjudeildinni í sumar.

FRÉTTIR20.11.2025, 22:48

Svavar Örn í HK (Staðfest)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, nýr þjálfari HK, hefur sótt hægri bakvörðinn Svavar Örn Þórðarson frá sínum gömlu félögum í Njarðvík. HK-ingar tilkynntu komu Svavars í kvöld.

FRÉTTIR20.11.2025, 12:43

Baldur Logi í Keflavík (Staðfest)

Baldur Logi Guðlaugsson er genginn í raðir Keflavíkur en hann kemur frá Stjörnunni. Hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu. Baldur Logi er 23 ára og á að baki 90 leiki í efstu deild. Hann er uppalinn hjá FH en hefur síðustu þrjú tímabil leikið með Stjörnunni. Hann er miðjumaður en getur leyst margar stður á vellinum. Keflavík endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar en fór í umspilið og vann það og verður því í Bestu deildinni á næsta tímabili.

FRÉTTIR20.11.2025, 10:16

Thelma Karen til Hacken (Staðfest)

<p>Thelma Karen Pálmadóttir, leikmaður FH, hefur verið seld til sænska félagsins Hacken. Félagið greindi frá tíðindunum í morgunsárið.</p><p>Thelma er fædd árið 2008 og var kjörinn efnilegasti leikmaður Bestu-deildar kvenna á afstöðnu tímabili. Í kjölfar frábærs tímabils var hún kölluð upp í A-landsliðið og spilaði sinn fyrsta landsleik í síðasta mánuði.</p>

FRÉTTIR19.11.2025, 16:50

Stubbur framlengir við KA (Staðfest)

Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, hefur skrifað undir nýjan samning við KA. Hans fyrri samningur var að renna út en nú er hann samningsbundinn út næsta tímabil. Hann var í haust orðaður við Magna, en hann ætlar að taka slaginn áfram með KA. Stubbur er 35 ára uppalinn KA-maður, hann varð fyrst aðalmarkmaður liðsins 2021 og svo aftur síðustu tvö tímabil. Tímabilin 2022 og 2023 var hann í samkeppni við Kristijan Jajalo. Hann hjálpaði KA að vinna Mjólkurbikarinn 2024, átti mjög góðan leik grgn Víkingi í bikarúrslitunum.

FRÉTTIR19.11.2025, 13:22

ÍBV fær leikmann frá KÍ Klaksvík (Staðfest)

ÍBV tilkynnti rétt í þessu að Færeyingurinn Ari í Haraldsstovu Petersen, væri genginn í raðir félagsins á lánssamningi frá KÍ Klaksvík. Ari Petersen er 22 ára markvörður sem lék alla leiki færeyska U21 landsliðsins í síðustu undankeppni fyrir EM. Á þessu tímabili lék hann með 07 Vestur í færeysku úrvalsdeildinni, lék alla leiki liðsins og var fyrirliði liðsins. Hann kemur til ÍBV sem vantaði markmann í samkeppni við Marcel Zapytowski eftir að Hjörvar Daði Arnarsson ákvað að vera ekki áfram í Eyjum.

FRÉTTIR19.11.2025, 11:25

Frans tekur sextánda tímabilið með Keflavík (Staðfest)

Frans Elvarsson, fyrirliði Keflavíkur, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Keflavík. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni í sumar og mun taka slaginn með því í Bestu deildinni næsta sumar. Keflavík endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar og fór upp úr deildinni með því að vinna umspilið. Næsta tímabil verður hans sextánda með Keflavík, en Hornfirðingurinn kom frá grönnunum í Njarðvík í sumarglugganum 2011.

FRÉTTIR19.11.2025, 11:10

Aron Fannar heim í Fjölni (Staðfest)

Aron Fannar Hreinsson er genginn í raðir Fjölnis, hann er uppalinn hjá félaginu og kemur frá Ægi. Hann skoraði þrjú mörk í tólf leikjum með Ægi í sumar og hjálpaði liðinu að vinna 2. deild. Hann tekur slaginn með Fjölni sem verður í 2. deild í sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar.

FRÉTTIR18.11.2025, 12:51

Árni Snær áfram hjá Stjörnunni (Staðfest)

<p>Árni Snær Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna út næsta tímabil. Árni, sem er fæddur 1991, var samningslaus eftir tímabilið.</p><p>Nokkur óvissa var með framtíð Árna en mörg félög úr Bestu deildinni höfðu áhuga á því að fá Árna í sínar raðir. Meðal liða sem voru nefnd eru: Víkingur, KR, ÍA og FH.&nbsp;</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.