Gonzalo Garcia gæti verið lánaður til Brighton frá Real Madrid - Man Utd vill sænskan táning - Liverpool leiðir kapphlaupið um Semenyo
   mið 19. nóvember 2025 16:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stubbur framlengir við KA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, hefur skrifað undir nýjan samning við KA. Hans fyrri samningur var að renna út en nú er hann samningsbundinn út næsta tímabil. Hann var í haust orðaður við Magna, en hann ætlar að taka slaginn áfram með KA.

Stubbur er 35 ára uppalinn KA-maður, hann varð fyrst aðalmarkmaður liðsins 2021 og svo aftur síðustu tvö tímabil. Tímabilin 2022 og 2023 var hann í samkeppni við Kristijan Jajalo.

Hann hjálpaði KA að vinna Mjólkurbikarinn 2024, átti mjög góðan leik grgn Víkingi í bikarúrslitunum.

Úr frétt á heimasíðu KA
Eru þetta ákaflega góðar fréttir fyrir okkur KA-menn enda hefur Stubbur verið einn besti markvörður Bestudeildarinnar undanfarin ár. Stubbur er uppalinn hjá félaginu og lék í sumar sinn 100. keppnisleik fyrir KA. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir KA sumarið 2007, þá aðeins 17 ára gamall en frá árinu 2010 lék hann með Völsung, Dalvík/Reyni, Þór og Magna. Með Magna var hann lykilleikmaður í ævintýrinu í næstefstu deild áður en hann sneri loks aftur heim í KA árið 2021.

Hann hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína í KA búningnum í kjölfarið en hann var meðal annars valinn besti leikmaður KA sumarið 2021 auk þess að vera valinn besti markvörður tímabilsins af sérfræðingum Pepsi Max stúkunnar og valinn í úrvalslið Morgunblaðsins. Þá átti hann heldur betur risastóran þátt í því þegar KA stóð uppi sem bikarmeistari í fyrsta skiptið í sögunni sumarið 2024 en stórbrotin markvarsla hans seint í leiknum mun seint renna okkur KA mönnum úr minni en þá var staðan 1-0.
Athugasemdir
banner