Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25093 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR06.11.2025, 15:47

Ajax rekur Heitinga (Staðfest)

<p>Ajax hefur rekið þjálfarann John Heitinga. Tap liðsins gegn Galatasary í Meistaradeildinni í gær virðist hafa gert útslagið en félagið tilkynnti brottreksturinn fyrir skömmu. </p><p>Heitinga tók við liðinu í upphafi sumars. Þar áður var hann aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool og var í teyminu þegar Liverpool vann ensku deildina á síðasta tímabili.</p>

FRÉTTIR06.11.2025, 14:50

Fimm leikmenn kveðja ÍA (Staðfest)

ÍA tilkynnti í dag um breytingar á leikmannahópi félagsins. Fimm leikmenn félagsins kveðja. Það eru þeir Arnleifur Hjörleifsson, Árni Salvar Heimisson, Guðfinnur Þór Leósson, Hlynur Sævar Jónsson og Kristófer Áki Hlinason. Hlynur Sævar er 26 ára varnarmaður sem kom við sögu í 21 deildarleik með ÍA á tímabilinu. Hann var samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Guðfinnur er 26 ára miðjumaður sem kom við sögu í níu deildarleikjum með ÍA á tímabilinu. Samningur hans gildir til 16. nóvember. Arnleifur er 25 ára vinstri bakvörður sem lék á láni hjá Njarðvík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Hann var samningsbundinn út næsta tímabil. Árni Salvar er 22 ára hægri bakvörður sem lék á láni með Grindavík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Samningur hans gildir til 16. nóvember. Í lok síðasta mánaðar tilkynnti Víkingur Ólafsvík að Kristófer Áki yrði áfram hjá félaginu en hann var þar á láni frá ÍA. Hann er 21 árs vinstri bakvörður.

FRÉTTIR05.11.2025, 21:14

Linda Líf til Kristianstad (Staðfest)

Linda Líf Boama hefur skrifað undir hjá Kristianstad í Svíþjóð. Linda Líf, sem er fædd árið 2001, skoraði átta mörk í 20 leikjum fyrir Víking í Bestu deildinni í sumar. Nik Chamberlain, sem stýrt hefur Breiðabliki, er að taka við Kristianstad.

FRÉTTIR05.11.2025, 18:05

Davíð Smári gerði tveggja ára samning við Njarðvík (Staðfest)

Davíð Smári Lamude hefur verið kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Viðtal við Davíð verður birt hér á Fótbolta.net í kvöld. Davíð, sem stýrði Vestra til bikarmeistaratitilsins í sumar, skrifaði undir samning við Njarðvíkinga út tímabilið 2027.

FRÉTTIR05.11.2025, 06:00

Tryggvi Snær yfirgefur Fram (Staðfest)

Tryggvi Snær Geirsson hefur yfirgefið Fram en hann var að klára sjötta tímabilið hjá félaginu. Hann lék 133 leiki með liðinu og skoraði tíu mörk. Hann gekk til liðs við Fram frá KR fyrir tímabilið 2020.

FRÉTTIR04.11.2025, 17:11

Natasha til nýliðanna (Staðfest)

Natasha Anasi-Erlingsson er gengin í raðir Grindavíkur/Njarðvíkur, hún var tilkynnt á fréttamannafundi sem nýr leikmaður félagsins í dag. Natasha skrifar undir eins árs samning við Grindavík/Njarðvík sem endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar í ár og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili. Natasha er 34 ára og lenti í því óláni að slíta krossband í ágúst og verður því frá fram á næsta ár. Hún býr yfir mikilli reynslu, spilaði fyrst á Íslandi um mitt sumar 2014 og á að baki rúmlega 150 deildarleiki á Íslandi. Hún lék með ÍBV, Keflavík og Breiðabliki áður en kallið kom frá Noregi þar sem hún samdi við Brann. Þar glímdi hún við erfið meiðsli og sneri svo til Vals í sumarglugganum 2024.

FRÉTTIR04.11.2025, 11:04

Pioli rekinn frá Fiorentina (Staðfest)

<p>Fiorentina hefur látið ítalska þjálfarann Stefano Pioli fara. Liðið er án sigurs í ítölsku deildinni eftir tíu leiki og situr nú í 19. sæti deildarinnar með fjögur stig, sem er versta byrjun í sögu liðsins. </p><p>Liðið tapaði gegn Lecce um helgina en eftir tapið gaf félagið út yfirlýsingu þar sem greint var frá því að enginn fulltrúi félagsins væri til tals við fjölmiðla eftir leikinn.</p>

FRÉTTIR04.11.2025, 06:00

Karlotta Björk alfarið til HK (Staðfest)

Karlotta Björk Andradóttir er gengin til liðs við HK frá Stjörnunni. Hún var á láni í Kópavogi síðasta sumar og skoraði fimm mörk í 14 leikjum fyrir HK. Liðið hafnaði í 3. sæti deildarinnar. Karlotta er fædd árið 2007 og er uppalin hjá Þór. Hún spilaði fimm leiki með Þór/KA í Bestu deildinni sumarið 2023 og einnig sex leiki með Álftanesi í 2. deild sama sumar.

FRÉTTIR03.11.2025, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Valur, vonbrigði og Gísli Eyjólfs

Langflestar af mest lesnu fréttum vikunnar tengjast íslenska boltanum. Valstengdar fyrirsagnir og vendingar í stjórnum vöktu athygli, þjálfarakapallinn og heimkoma Gísla Eyjólfssonar rataði líka ofarlega á listann. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR03.11.2025, 10:30

Kimberley Dóra í Val (Staðfest)

Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Þór/KA. Kimberley er fædd árið 2005 og var valin besti leikmaður Þórs/KA á lokahófi félagsins. Hún skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda, en fleiri félög vildu fá hana í sínar raðir. <i>„Þrátt fyrir að vera aðeins tvítug hefur Kimberley þegar fest sig í sessi sem einn kraftmesti miðjumaður Bestu deildarinnar,"</I> segir í tilkynningu Vals. Kimberley Dóra hefur leikið 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og bætti við 19. landsleiknum fyrir U23 landsliðið í júní þegar hún lék gegn Skotlandi.

FRÉTTIR02.11.2025, 18:20

Hemmi Hreiðars ráðinn til Vals (Staðfest)

Valur er búinn að staðfesta ráðningu á Hermanni Hreiðarssyni sem nýjum aðalþjálfara meistaraflokks karla. Hann tekur við af Srdjan Tufegdzic sem var rekinn á dögunum.

FRÉTTIR02.11.2025, 12:00

Pereira rekinn frá Wolves (Staðfest) - Skrifaði nýverið undir nýjan samning

Vitor Pereira hefur verið rekinn sem stjóri Wolves eftir slæmt gengi á tímabilinu. Liðið tapaði gegn Fulham í gær og er aðeins með tvö stig á botni úrvalsdeildarinnar eftir tíu umferðir. Þá er liðið úr leik í deildabikarnum eftir tap gegn Chelsea í 16-liða úrslitum. Stuðningsmenn liðsins hafa sungið 'þú verður rekinn á morgun,' undanfarið sem hefur ekki farið vel í Pereira en hann gagnrýndi þá eftir 3-2 tap liðsins gegn Burnley um síðustu helgi.

FRÉTTIR01.11.2025, 17:04

Nenad og Arnar áfram með Ægi (Staðfest)

Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis, og Arnar Logi Sveinsson, aðstoðarþjálfari, hafa skrifað undir nýjan eins árs samning við Ægi ásamt Ivaylo Yanachkov, markmannsþjálfara liðsins.

FRÉTTIR01.11.2025, 12:04

Lundemo sagt upp hjá Val (Staðfest)

Valur nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi Marius Lundemo og hefur hann því yfirgefið félagið. Lundemo er 31 árs gamall Norðmaður sem gekk til liðs við félagið fyrir tímabilið en hann vann fjölda titla með Rosenborg á sínum tíma, þá spilaði hann einnig með Lilleström.

FRÉTTIR01.11.2025, 11:00

Vieira rekinn frá Genoa (Staðfest)

Patrick Vieira hefur verið rekinn frá ítalska liðinu Genoa eftir slæmt gengi liðsins á tímabilinu. Liðið er án sigurs í fyrstu níu deildarleikjum og hefur tapað sex. Liðið er á botni deildarinnar með þrjú stig.

FRÉTTIR31.10.2025, 15:35

Andri Fannar spilar ekki áfram með KA (Staðfest)

KA tilkynnti í dag að Andri Fannar Stefánsson yrði ekki áfram leikmaður félagsins. Honum er þakkað kærlega fyrir hans framlag sem leikmaður liðsins. Andri Fannar er þó ekki að kveðja félagið því hann er mjög fær yngri flokka þjálfari og heldur áfram að starfa fyrir félagið. Hann er afreksþjálfari 13-16 ára drengja og þjálfar 5. flokk drengja.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.