Gonzalo Garcia gæti verið lánaður til Brighton frá Real Madrid - Man Utd vill sænskan táning - Liverpool leiðir kapphlaupið um Semenyo
   þri 04. nóvember 2025 11:04
Kári Snorrason
Pioli rekinn frá Fiorentina (Staðfest)
Stefano Pioli.
Stefano Pioli.
Mynd: EPA

Fiorentina hefur látið ítalska þjálfarann Stefano Pioli fara. Liðið er án sigurs í ítölsku deildinni eftir tíu leiki og situr nú í 19. sæti deildarinnar með fjögur stig, sem er versta byrjun í sögu liðsins. 

Liðið tapaði gegn Lecce um helgina en eftir tapið gaf félagið út yfirlýsingu þar sem greint var frá því að enginn fulltrúi félagsins væri til tals við fjölmiðla eftir leikinn.


Hundruðir stuðningsmanna liðsins mótmæltu fyrir utan Stadio Franchi, heimavöll Fiorentina, eftir leikinn og beindist reiðin helst að Pioli.

Pioli tók við Fiorentina fyrr á árinu en þar áður stýrði hann Al Nassr og AC Milan.

Hjá Fiorentina leikur landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson en hann hefur spilað átta leiki í deildinni á tímabilinu og hefur hann skorað eitt mark og lagt upp annað í leikjunum átta.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 11 8 0 3 26 12 +14 24
2 Roma 11 8 0 3 12 5 +7 24
3 Milan 11 6 4 1 17 9 +8 22
4 Napoli 11 7 1 3 16 10 +6 22
5 Bologna 11 6 3 2 18 8 +10 21
6 Juventus 11 5 4 2 14 10 +4 19
7 Como 11 4 6 1 12 6 +6 18
8 Sassuolo 11 5 1 5 14 12 +2 16
9 Lazio 11 4 3 4 13 9 +4 15
10 Udinese 11 4 3 4 12 17 -5 15
11 Cremonese 11 3 5 3 12 13 -1 14
12 Torino 11 3 5 3 10 16 -6 14
13 Atalanta 11 2 7 2 13 11 +2 13
14 Cagliari 11 2 4 5 9 14 -5 10
15 Lecce 11 2 4 5 8 14 -6 10
16 Pisa 11 1 6 4 8 14 -6 9
17 Parma 11 1 5 5 7 14 -7 8
18 Genoa 11 1 4 6 8 16 -8 7
19 Verona 11 0 6 5 6 16 -10 6
20 Fiorentina 11 0 5 6 9 18 -9 5
Athugasemdir
banner