Fotbolti.net
03.01.13 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska 2 - Þrír frá Man Utd

Jonny Evans er í úrvalsliðinu.

Jonny Evans er í úrvalsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrsta úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar á árinu 2013 er nú opinberað. Það er nokkuð síðan við leituðum til Garth Crooks, sérfræðings BBC, en hér að neðan má sjá úrvalsliðið að hans mati.

Crooks segir það hafa verið erfitt að þurfa að kyngja því að hafa ekki pláss fyrir Dimitar Berbatov sem sýndi frábæra frammistöðu á Nýársdag.


Markvörður - Julio Cesar (QPR)
Óvæntustu úrslit tímabilsins til þessa komu þegar QPR vann 1-0 útisigur gegn Chelsea. Cesar eignaði sér vítateiginn og átti frábera markvörslu frá Fernando Torres í seinni hálfleik.

Hægri bakvörður - Pablo Zabaleta (Manchester City)
Argentínumaðurinn hefur átt frábært tímabil. Hann skoraði fyrsta markið gegn Stoke, gegn liði eins og Stoke er erfiðast að brjóta ísinn.

Miðvörður - Clint Hill (QPR)
Adel Taarabt og Esteban Granero voru frábærir í óvæntum sigri QPR gegn Chelsea en það verður að hrósa leiðtoganum Hill. Hann heldur Anton Ferdinand á bekknum og sýndi ástæðu þess.

Miðvörður - Jonny Evans (Manchester United)
Hefur oft verið gagnrýndur en hefur sýnt það og sannað að hann er í háum gæðaflokki og ekki að ástæðulausu í liði United.

Vinstri bakvörður - Leighton Baines (Everton)
Enn og aftur í liði vikunnar. Þegar Baines spilar vel þá spilar Everton vel.

Miðjumaður - Aaron Lennon (Tottenham=
Steig vel upp í fjarveru Gareth Bale. Hefur verið flottur í síðustu leikjum.

Miðjumaður - Marouane Fellaini (Everton)
Fellaini er mættur aftur eftir leikbann og er farinn að gera það sem hann gerir best. Newcastle náði ekki að ráða við Belgann.

Miðjumaður - Wayne Routledge (Swansea)
Hefur aldrei spilað betur en einmitt um þessar mundir. Fór illa með Aston Villa í fyrri hálfleik.

Sóknarmaður - Robin Van Persie (Manchester United)
Listamaður. Án marka og stoðsendinga hans væri United í ellefta sæti deildarinnar.

Sóknarmaður - Luis Suarez (Liverpool)
Var á eldi gegn Sunderland. Hefur þegar gert 15 úrvalsdeildarmörk, fleiri en nokkur leikmaður Liverpool náði að skora á síðasta tímabili eða tímabilinu þar á undan.

Sóknarmaður - Javier Hernandez (Manchester United)
Ferguson fann annan Ole Gunnar Solskjær. Ótrúlegur í teignum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.