Fotbolti.net
07.07.26 - 19:16
Elvar Geir Magnússon

Ronaldo táraðist í gær og Messi táraðist í dag

Messi grét gleðitárum eftir sigurinn.

Messi grét gleðitárum eftir sigurinn.

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi táraðist eftir magnaða endurkomu Argentínu gegn Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM í dag. Argentínumenn voru tveimur mörkum undir þegar þeir komust á bragðið á 79. mínútu og unnu á endanum 3-2 sigur þar sem Enzo Fernandez skoraði sigurmarkið með skalla í uppbótartíma.

Þetta var rússíbanaleikur fyrir Messi sem klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik en lagði svo upp og skoraði í endurkomu heimsmeistarana í seinni hálfleiknum.
HM: Svakalegur viðsnúningur hjá Argentínu
TENGT EFNI

HM: Svakalegur viðsnúningur hjá Argentínu

„Röddin mín er farin, ég elskaði þennan leik. Í gær sáum við tár frá Cristiano Ronaldo, í dag sáum við gleðitár frá Messi," sagði sparkspekingurinn Roy Keane á ITV.

Ronaldo táraðist eftir að Portúgal féll úr leik eftir tap gegn Spáni í gær en það var hans síðasti leikur á heimsmeistaramótinu. Tilfinningarnar náðu líka til Messi í dag, en á annan hátt.

„Argentínumenn gefast ekki upp. Gæðin í mörkunum þeirra voru ótrúleg. Þetta er ástæðan fyrir því að við elskum fótbolta. Algjörlega magnað," sagði Keane.

Lionel Messi er markahæsti leikmaður í sögu HM með 21 mark, tveimur mörkum meira en Frakkinn Kylian Mbappe sem er í öðru sæti.

Ronaldo eftir vonbrigði Portúgals.

Ronaldo eftir vonbrigði Portúgals.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.