Fotbolti.net
07.07.26 - 16:36
Kári Snorrason

Messi fyrstur til að klúðra tveimur vítum á sama heimsmeistaramóti

Klúðrað tveimur vítum á mótinu.

Klúðrað tveimur vítum á mótinu.

Canon

Mynd: EPA

Egyptaland og Argentína eigast nú við í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Egyptar leiða með einu marki eftir að varnarmaðurinn Yassir Ibrahim skoraði með skalla á 15. mínútu.

Argentínumenn fengu kjörið tækifæri til að jafna metin sex mínútum síðar þegar Nicolás Tagliafico sótti vítaspyrnu. Lionel Messi steig á punktinn en honum brást bogalistin og Mostafa Shabeir varði spyrnuna.
Þetta er í annað sinn á mótinu sem Messi klúðrar vítaspyrnu, en hann setti boltann framhjá úr vítaspyrnu gegn Austurríki í riðlakeppninni.

Messi er þar með fyrsti leikmaðurinn til að misnota tvær vítaspyrnur á sama heimsmeistaramóti, ef vítaspyrnukeppnir eru undanskildar.

Alls hefur Messi tekið átta vítaspyrnur á heimsmeistaramótum. Hann hefur misnotað fjórar þeirra; tvær á mótinu í ár, eina gegn Póllandi á HM 2022 og eina gegn Íslandi, sem Hannes Þór Halldórsson varði, á HM í Rússlandi árið 2018.

Sjáðu mark Egyptalands

Sjáðu vítaklúður Messi


Markinu fagnað innilega.

Markinu fagnað innilega.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.