Fotbolti.net
06.07.26 - 22:28
Stefán Marteinn Ólafsson

Helgi Sig: Teljum okkur vera komnir það langt að við viljum vinna alla leiki

Auglýsing
Helgi Sigurðsson stýrði Fram í fjarveru Rúnars sem var veikur

Helgi Sigurðsson stýrði Fram í fjarveru Rúnars sem var veikur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram heimsótti Keflavík á HS Orku völlinn í lokaleik 13. umferð Bestu deild karla í kvöld. 

Fram mætti á flottu skriði inn í leikinn í kvöld en urðu að láta sér jafnteflið duga. 

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 1 Fram

„Alltaf smá vonbrigði að vinna ekki fótboltaleiki" sagði Helgi Sigurðsson aðstoðarþjálfari Fram sem stýrði liðinu í fjarveru Rúnars Kristinssonar sem var veikur. 

„Við teljum okkur vera komnir það langt að við viljum vinna alla leiki en við gerum okkur grein fyrir að við erum að spila á móti góðum liðum líka og Keflavík gaf allt í þennan leik eins og við" 

„Þetta var bara fannst mér jafn leikur og kannski ef maður horfir yfir það heila þá kannski var jafntefli bara sanngjörn niðurstaða" 

Fram komst yfir í leiknum og voru svekktir að halda það ekki út.

„Svekkjandi þegar maður kemst yfir að klára ekki leiki en þeir gerðu vel Keflavík í markinu. Góð fyrirgjöf og góður skalli en við hefðum svo sem getað gert eitthvað betur þar en það er bara eins og alltaf þegar maður fær mörk á sig þá fer maður að reyna pota í það sem að betur mátti fara en get ekkert kvartað yfir strákunum. Þeir lögðu sig 100% fram" 

„Við komum auðvitað til þess að vinna þennan leik en verðum að gera okkur það að góðu að taka eitt stig í dag" sagði Helgi Sigurðsson.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR14+1429
3Fram13+727
4Breiðablik13+722
5Valur14-319
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV13-415
9ÍA13-815
10KA13-910
11FH13-138
12Þór13-218
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.