07.07.26
„Þetta höfum við aldrei séð áður" - Hvað er að gerast hjá Tottenham?
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Það hefur ekkert félag á Englandi farið jafn ákveðið inn í félagaskiptagluggann nú í sumar og Tottenham. Eftir tvö tímabil sem voru langt undir væntingum virðist allt benda til þess að ný stjórn félagsins ætli að snúa blaðinu við með afgerandi hætti. Stór nöfn hafa bæst við hópinn, fleiri eru sögð á leiðinni og væntingarnar meðal stuðningsmanna hafa hækkað hratt.
En hvernig hefur félag sem endaði í 17. sæti í ensku úrvalsdeildinni fyrir nokkrum vikum efni á þessari miklu fjárfestingu? Og eru stuðningsmenn Spurs sannfærðir um að þetta sé upphafið að nýjum kafla eða óttast þeir að félagið sé að taka of mikla áhættu?
Fotbolti.net ræddi við tvo stuðningsmenn Tottenham á Íslandi, þá Ingimar Helga Finnsson og Hjálmar Örn Jóhannsson, um félagaskiptaglugga félagsins, væntingarnar fyrir næsta tímabil og hvort Spurs séu tilbúnir að stíga aftur skrefið upp meðal sterkustu liða Englands.