Fotbolti.net
07.07.26 - 13:16
Kári Snorrason

Fer fögrum orðum um Amin - „Fylgst með honum í þó nokkurn tíma“

Gekk til liðs við Noregsmeistarana á metfé.

Gekk til liðs við Noregsmeistarana á metfé.

Canon

Mynd: Viking Stavanger

Amin Cosic var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður norsku meistarana í Viking Stavanger.

Fótbolti.net hefur heimilidir fyrir því að kaupverðið sé um 80 milljónir króna og það sé hæsta upphæð sem íslenskt félag hefur fengið fyrir að selja leikmann erlendis.
Amin Cosic til Viking (Staðfest) - Seldur á metupphæð
TENGT EFNI

Amin Cosic til Viking (Staðfest) - Seldur á metupphæð

Erik Nevland, yfirmaður fótboltamála hjá Viking, fór fögrum orðum um Amin á heimasíðu liðsins.

„Amin er leikmaður sem við höfum fylgst með í þó nokkurn tíma. Hann býr yfir spennandi eiginleikum fram á við - líður vel með boltann og hefur hæfileika sem falla vel að því hvernig við viljum spila. Við teljum hann hafa hátt þak og hlökkum til að fá hann inn í okkar umhverfi,“ segir Nevland.

Sjálfur segir Amin spenntur fyrir komandi tímum og er ánægður að vera kominn til Viking.

„Ég hlakka til að kynnast liðinu og borginni betur. Allir hafa tekið vel á móti mér og ég er spenntur fyrir því að leggja mitt af mörkum fyrir Viking,“ er haft eftir Amin á heimasíðu félagsins.
Með foreldrum við undirskrift.

Með foreldrum við undirskrift.

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.