Fotbolti.net
07.07.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Brentford kaupir Anthony (Staðfest)

Brentford kaupir Anthony (Staðfest)
Canon

Mynd: Brentford

Brentford hefur fest kaup á Jaidon Anthony frá Burnley. Hann hefur til þessa skorað ellefu mörk og lagt upp fimm í 70 leikjum í úrvalsdeildinni til þessa.

Heildarupphæðin er sögð vera 17 milljónir punda en hluti af henni er í árangurstengdum greiðslum.

Vængmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við Brentford og er möguleiki á árs framlengingu.
Bournemouth fær 15% af upphæðinni en samið var um prósentu af næstu sölu þegar Burnley keypti Anthony fyrir rúmu ári síðan.

Anthony er 26 ára vinstri kantmaður sem uppalinn er hjá Arsenal og Bournemouth. Hann er fæddur á Englandi en er ættaður frá Jamaíku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.