
Byrjunarlið Víkings gegn Györ: Ögmundur byrjar sinn fyrsta leik - Endurkoma Daða Bergs eftir árs fjarveru


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg sló í gegn með Vestra fyrri part síðasta tímabils.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Aron Snær er fjarverandi í kvöld eftir að hafa orðið fyrir meiðslum gegn KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tekur á móti ungversku meisturunum frá Györ á Víkingsvellinum klukkan 19:00 í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Þetta er fyrri leikur liðanna en sá síðari fer fram eftir viku í Ungverjalandi. Byrjunarliðin fyrir leik kvöldsins eru komin inn og gerir Sölvi þrjár breytingar á sínu liði frá 3-2 sigrinum gegn KA.
Aron Snær varð fyrir ökklameiðslum í leiknum gegn KA og er fjarverandi í leik kvöldsins. Ögmundur Kristinsson byrjar því sinn fyrsta leik fyrir Víking í hans fjarveru en hann kom einmitt inn á fyrir Aron gegn KA og fékk þar sínar fyrstu mínútur í treyju Víkings. Karl Friðleifur Gunnarsson kemur einnig inn í liðið en á bekkinn fer Davíð Örn Atlason sem byrjaði síðasta leik gegn KA. Daníel Hafsteinsson var að glíma við smávægileg meiðsli sem hann varð fyrir í 3-0 tapinu gegn Blikum í bikarnum og var hann því ekki í leikmannahópi Víkings gegn KA en hann snýr aftur í dag. Hann fer beint í byrjunarliðið og á bekkinn sest Tarik Ibrahimagic.
Það eru gleðifréttir fyrir Víkinga að á bekknum er Daði Berg Jónsson, sem spilaði síðast meistaraflokksleik 12. júlí á síðasta ári. Eins og flestir vita var hann á láni hjá Vestra á síðustu leiktíð og sló þar í gegn áður en hann var kallaður til baka í sumarglugganum en spilaði ekkert eftir það. Einnig er Róbert Orri Þorkelsson á bekknum í kvöld en hann hefur verið að glíma við meiðsli seinustu mánuði.
Einnig má sjá á leikmannahópi Györ að alsírski HM-farinn, Nadhir Benbouali, er ekki með en hann glímir við meiðsli. Hann skoraði eitt mark á HM og er besti leikmaður liðsins en á síðustu leiktíð skoraði hann 15 mörk og gerði fjórar stoðsendingar fyrir Györ.
Það eru því allir útileikmenn Víkings heilir og í hóp í kvöld að undanskildum Stíg Diljan Þórðarsyni sem er þó byrjaður að æfa aftur eftir nokkra mánaða meiðsli. Víkingar gætu varla verið á betri stað fyrir komandi Evrópuleiki og því tilvalið að byrja á sterkum heimasigri í kvöld.
Byrjunarlið Víkingur R.
Ögmundur Kristinsson, Sveinn Gísli Þorkelsson, Helgi Guðjónsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson, Óskar Borgþórsson, Aron Elís Þrándarson, Karl Friðleifur Gunnarsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Elías Már Ómarsson, Oliver Ekroth (f)
Byrjunarlið Györ
Samuel Petráš, Stefan Vladoiu, Rajmund Tóth, Claudiu Bumba, Nfansu Njie, Márk Csinger, Daniel Štefulj, Miljan Krpic, Milán Vitális (f), Željko Gavric, Kevin Bánáti

Daði Berg sló í gegn með Vestra fyrri part síðasta tímabils.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Aron Snær er fjarverandi í kvöld eftir að hafa orðið fyrir meiðslum gegn KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



