Fotbolti.net
07.07.26 - 18:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Svakalegur viðsnúningur hjá Argentínu

HM: Svakalegur viðsnúningur hjá Argentínu
Canon

Mynd: EPA

Argentína 3 - 2 Egyptaland
0-1 Yasser Ibrahim ('15 )
0-1 Lionel Messi ('21 , Misnotað víti)
0-2 Mostafa Ziko ('67 )
1-2 Cristian Romero ('79 )
2-2 Lionel Messi ('83 )
3-2 Enzo Fernandez ('90 )
Ríkjandi heimsmeistarar Argentínu eru komnir í 8-liða úrslit á HM eftir svakalegan endurkomusigur á Egyptalandi.

Egyptar náðu forystunni þegar Marwan Attia átti sendingu inn á teiginn og Yasser Ibrahim skallaði boltann í netið.

Argentína fékk vítaspyrnu stuttu síðar þegar Haissem Hassan braut á Nicolas Tagliafico. Lionel Messi steig á punktinn en Mostafa Shobeir varði frá honum. Þetta var í annað sinn á mótinu sem Messi klúðrar vítaspyrnu.

Messi var nálægt því að skora beint úr aukaspyrnu eftir hálftíma leik en skotið í stöngina.

Argentína setti mikla pressu á egypsku vörnina undir lok fyrri hálfleiks en Egyptar voru enn með forystu þegar flautað var til hálfleiks.

Mostafa Ziko skoraði annað mark fyrir Egypta eftir klukkutíma leik en markið var dæmt af því það var brotið á Lisandro Martinez hinu megin á vellinum.

Ziko kom hins vegar Egyptum í tveggja marka forystu stuttu síðar. Mohamed Salah gann Hassan og hann sendi á Ziko inn á teiginn sem skoraði.

Argentínumenn gáfust ekki upp og varnarmaðurinn Cristian Romero var kominn í fremstu víglínu og minnkaði muninn þegar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

Lionel Messi jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Hann átti skot sem Shobeir varði í slána og inn.

Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fullkomnaði Enzo Fernandez endurkomu Argentínu þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Lautaro Martinez.

Markið kom eftir skyndisókn en Egyptar voru brjálaðir. Þeir vildu fá vítaspyrnu þar sem Mohamed Salah féll í teignum rétt áður. Maður í þjálfarateymi Egypta fékk að líta rauða spjaldið og Attia og Hossam Hassan, landsliðsþjálfari Egypta, fengu gult spjald.

Það var sigurmarkið og Argentína er komið í 8-liða úrslit en Egyptar sitja eftir með sárt ennið. Argentína mætir Sviss eða Kólumbíu í 8-liða úrslitum en það kemur í ljós síðar í kvöld hvort liðið kemst áfram.
HM: Svakalegur viðsnúningur hjá Argentínu
Canon

Mynd: EPA

HM: Svakalegur viðsnúningur hjá Argentínu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.