Hákon Arnar Haraldsson skoraði bæði mörk U21 árs landsliðs Íslands gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni Evrópumótsins í gær.
Lestu um leikinn: Hvíta Rússland U21 1 - 2 Ísland U21
Hákon kom inná sem varamaður fyrir Brynjólf Andersen Willumsson eftir aðeins fimm mínútur.
Hann var ekki lengi að stimpla sig og skoraði strax á 20. mínútu og bætti svo við öðru á 54. mínútu.
Ísland vann leikinn 2-1 en þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppninni. Hægt er að sjá bæði mörkin hér fyrir neðan.
Hákon Anar Haraldsson scorede to flotte mål for det Islandske U21-landshold igår. Se dem her: #fcklive #sldk pic.twitter.com/XrJz3PEn0b
— F.C. København (@FCKobenhavn) September 3, 2021
Athugasemdir