Fotbolti.net
06.12.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Friðrik Dór spáir í leiki helgarinnar

Friðrik Dór Jónsson er að gefa út matreiðslubók.

Friðrik Dór Jónsson er að gefa út matreiðslubók.

Canon

Mynd: Fullt tungl

Árni Vilhjálmsson var með tvo rétta þegar hann spáði í leikina í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson spáir í leikina að þessu sinni en hann er að gefa út bókina „Léttir réttir Frikka."


Everton 2 - 4 Chelsea (12:30 á morgun)
Chelsea tekur þennan leik því miður fyrir íslensku þjóðina sem elskar auðvitað Gylfann sinn. En það verður huggun harmi gegn að Gylfi skorar eitt og leggur upp annað fyrir Everton.

Bournemouth 1 - 2 Liverpool (15:00 á morgun)
Liverpool sækir enn einn sigurinn með minnsta mun.

Tottenham 1 - 1 Burnley (15:00 á morgun)
Tottenham kemur til baka eftir tapið gegn United en þó ekki nema hálfa leið.

Watford 0 - 2 Crystal Palace (15:00 á morgun)
Ljósmyndarinn sem tók allar matarmyndirnar í Léttir Réttir Frikka heitir Ernir. Ég get því ekki annað en veðjað á Ernina í þessum leik.

Manchester City 0 - 1 Manchester United (17:30 á morgun)
United koma sterkir til leiks eftir sigurinn gegn Tottenham og tryggja sér montréttinn. Lokatölur 1-0 fyrir United

Aston Villa 2 - 2 Leicester (14:00 á sunnudag)
Þetta er jafntefli. Klárt.

Newcastle 3 - 1 Southampton (14:00 á sunnudag)
Newcastle er mitt lið nr. tvö. Elska Faustino Asprilla enn þann dag í dag. Þeir taka þetta.

Norwich 0 - 1 Sheffield United (14:00 á sunnudag)
Það hleypur púki í Pukki sem skorar eina mark leiksins í eigið net.

Brighton 3 - 1 Wolves (16:30 á sunnudag)
Bjart yfir í Brighton eftir sigurinn á Arsenal. Heimasigur hér.

Arsenal 1 -3 West Ham (20:00 á mánudag)
Freddie Ljungberg ber enn taugar til West Ham eftir samninginn sem hann fékk hjá Eggert the Eggman Magnösson. Hann kemur því í gjafastuði til leiks og West Ham nýtir sér það.

Sjá fyrri spámenn:
Aron Einar Gunnarsson (7 réttir)
Kristján Óli Sigurðsson (6 réttir)
Pálmi Rafn Pálmason (6 réttir)
Jón Dagur Þorsteinsson (5 réttir)
Sóli Hólm (5 réttir)
Arnór Sigurðsson (4 réttir)
Ágúst Gylfason (4 réttir)
Logi Bergmann Eiðsson (4 réttir)
Þórður Ingason (4 réttir)
Guðmundur Benediktsson (3 réttir)
Ingibjörg Sigurðardóttir (3 réttir)
Sveinn Ólafur Gunnarsson (3 réttir)
Árni Vilhjálmsson (2 réttir)
Tómas Þór Þórðarson (2 réttir)
Manchester United vinnur grannaslaginn samkvæmt spá Frikka.

Manchester United vinnur grannaslaginn samkvæmt spá Frikka.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.