Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 08. mars 2023 09:22
Elvar Geir Magnússon
U17 hópur kvenna valinn fyrir undankeppni EM
Mynd: KSÍ
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í annarri umferð undankeppni EM 2023.

Samtals sex úr hópnum koma úr Breiðabliki og Augnabliki. Víkingur á þrjá leikmenn í hópnum.

Ísland er í B-deild undankeppninnar og á því ekki möguleika á sæti í lokakeppninni. Liðið mætir Albaníu og Lúxemborg, en leikið er í Albaníu.

Takist Íslandi að vinna riðilinn þá kemst liðið upp í A deild fyrir fyrri umferð undankeppni EM 2024.

Báðir leikir Íslands verða sýndir í beinni útsendingu á miðlum albanska knattspyrnusambandsins.

Hópurinn
Bryndís Halla Gunnarsdóttir - Augnablik
Herdís Halla Guðbjartsdóttir - Augnablik
Olga Ingibjörg Einarsdóttir - Augnablik
Harpa Helgadóttir - Breiðablik
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir - Breiðablik
Margrét Brynja Kristinsdóttir - Breiðablik
Berglind Freyja Hlynsdóttir - FH
Katrín Rósa Egilsdóttir - HK
Sóley María Davíðsdóttir - HK
Krista Dís Kristinsdóttir - KA
Ísabella Sara Tryggvadóttir - KR
Jóhanna Elín Halldórsdóttir - Selfoss
Lilja Björk Unnarsdóttir - Selfoss
Glódís María Gunnarsdóttir - Valur
Kolbrá Una Kristinsdóttir - Valur
Freyja Stefánsdóttir - Víkingur R.
Sigdís Eva Bárðardóttir - Víkingur R.
Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir - Víkingur R.
Athugasemdir
banner
banner
banner