01.10.26 - 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjóðadeildin: Portúgal vann án Ronaldo - Fyrsti sigur Klopp

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgal fagnaði sigri eftir mikla dramatík á dögunum þar sem Cristiano Ronaldo yfirgaf herbúðir liðsins.
Portúgal heimsótti Danmörk. Joao Cancelo kom Portúgal yfir eftir að hafa unnið boltann við vítateig Dana. Mikkel Damsgaard jafnaði metin með glæsilegu skoti í fjærhornið.

Goncalo Ramos kom Portúgal aftur yfir strax í kjölfarið þegar hann slapp í gegn eftir sendingu frá Bruno Fernandes.
Rasmus Höjlund jafnaði metin snemma í seinni hálfleik en hann fagnaði markinu að hætti Ronaldo með svokallaða 'Siu' fagninu. Vitinha skoraði síðan þriðja mark Portúgals og Joao Felix innsiglaði sigurinn undir lokin.
Portúgal er með níu stig en Danmörk með þrjú stig.
Wales hafði betur gegn Noregi í sama riðli eftir að Oscar Bobb hafði komið Noregi yfir. Daniel James jafnaði metin áður en flautað var til hálfleiks.
Neco Williams tryggði Wales sigurinn með marki úr aukaspyrnu eftir að Torbjorn Heggem var rekinn af velli. Bæði lið eru með þrjú stig.
Þýskaland fékk Serbíu í heimsókn og vann í fyrsta sinn undir stjórn Jurgen Klopp.
Tom Bischof kom Þýskalandi yfir þegar hann fylgdi á eftir skoti Florian Wirtz sem fór í stöngina. Það var síðan Wirtz sem innsiglaði sigurinn.
Hollendingar náðu í stig eftir að hafa verið tveimur mörkum undir gegn Grikkjum.
Grikkinn og Arsenalmaðurinn Christos Tzolis þurfti að fara af velli eftir tæplega tuttugu mínútna leik. Fotis Iannidis kom Grikkjum yfir og Georgios Masouras, sem kom inn á fyrri Tzolis, bætti öðru markinu við.
Holland tók öll völd á vellinum í seinni hálfleik eftir þrefalda skiptingu Xavi. Noa Lang, Tijjani Reijnders og Ryan Gravenberch komu inn á. Virgil Van Dijk minnkaði muninn eftir klukkutíma leik.
Það var síðan Reijnders sem bjargaði stigi fyrir Holland í lokin. Grikkland er á toppnum með sjö stig, Holland í 2. sæti með fimm stig, Þýskaland í þriðja með fjögur og Serbía á botninum án stiga.
Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar hjá Írlandi byrjuðu leikinn vel gegn Austurríki þar sem Troy Parrott sá til þess að liðið var með tveggja marka forystu í hálfleik.
Austurríki náði hins vegar að koma til baka í seinni hálfleik og náðu í stig. Ísrael og Kósovó gerðu markalaust jafntefli í sama riðli í B-deildinni. Austurríki er á toppnum með sjö stig, Kósovó og Írland með fjögur stig og Ísrael eitt stig.
Danmörk 2 - 4 Portúgal
0-1 Joao Cancelo ('13 )
1-1 Mikkel Damsgaard ('23 )
1-2 Goncalo Ramos ('25 )
2-2 Rasmus Hojlund ('53 )
2-3 Vitinha ('67 )
2-4 Joao Felix ('87 )
Þýskaland 2 - 0 Serbía
1-0 Tom Bischof ('39 )
2-0 Florian Wirtz ('61 )
Grikkland 2 - 2 Holland
1-0 Fotis Ioannidis ('23 )
2-0 Georgios Masouras ('45 )
2-1 Virgil van Dijk ('59 )
2-2 Tijjani Reijnders ('89 )
Wales 2 - 1 Noregur
0-1 Oscar Bobb ('11 )
1-1 Daniel James ('38 )
2-1 Neco Williams ('48 )
Rautt spjald: Torbjorn Heggem, Norway ('46)
B deild
Írland 2 - 2 Austurríki
1-0 Troy Parrott ('12 )
2-0 Troy Parrott ('45 , víti)
2-1 Alexander Prass ('71 )
2-2 Michael Gregoritsch ('77 )
Israel 0 - 0 Kosovo
D deild
Azerbaijan 0 - 0 Liechtenstein
Malta 1 - 1 Gibraltar
1-0 Joseph Mbong ('53 )
1-1 James Scanlon ('61 )