Fotbolti.net
02.10.26 - 08:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Höjlund fagnaði að hætti Ronaldo - „Ekki að gera grín að honum"

Höjlund fagnaði að hætti Ronaldo - „Ekki að gera grín að honum"
Canon

Mynd: EPA

Danmörk tapaði 4-2 gegn Portúgal í þjóðadeildinni í gær. Staðan var 2-1 í hálfleik Portúgal í vil.

Rasmus Höjlund jafnaði metin snemma í seinni hálfleik og fagnaði að hætti Cristiano Ronaldo með því að taka 'Siu' fagnið hans fræga. Þetta er annar leikurinn í röð sem Höjlund tekur þetta fagn gegn Portúgal.
Þjóðadeildin: Portúgal vann án Ronaldo - Fyrsti sigur Klopp
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Portúgal vann án Ronaldo - Fyrsti sigur Klopp

Ronaldo var ekki með í leiknum þar sem hann yfirgaf herbúðir Portúgals vegna ósættis.

„Við töluðum aðeins um það hvort hann myndi gera þetta aftur. Hann verður að gera það. Ronaldo er ein af mestu fyrirmyndum hans og þetta er bara viðurkenning fyrir Ronaldo. Þetta er ekki til að gera grína að honum," sagði danski landsliðsmaðurinn Mohamed Daramy.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.